Hjásetur og afstöðuleysi.

Það er ábyrgðarstarf að vera bæjarfulltrúi. Kjósendur velja sér fólk til að starfa að málefnum bæjarins af festu og ábyrgð. Stundum koma upp mál sem skiptar skoðanir eru um og þá reynir á ábyrgð og hæfni hinna kjörnu fulltrúa. Í mörgum málum er þetta einfalt og þægilegt og menn taka afstöðu í málum sem hreint fyrir. Önnur mál eru erfiðari og oft á tíðum þurfa bæjarfulltrúar að kafa djúpt í málin til að átta sig á hver staðan er. Hún er sjaldast svart - hvít og því mikilvægt að kjörnir fulltrúar kynni sér mál í hörgul til að geta tekið bestu ákvörðun samkvæmt samvisku sinni. Það er oft mikil vinna og stundum flókið að taka ákvarðanir sem ekki öllum líkar. En það er víst nauðsynleg því annars fæst seint niðurstaða í sum mál þegar  skoðanir eru skiptar.

Að sitja hjá er oft á tíðum ódýrasta lausnin sem stjórnmálamönnum dettur í hug. Það hefur mér alltaf þótt bera vott um ábyrðarleysi eða leti. Mér finnst það bera vott um lítið hugrekki og litla pólitíska ábyrgð. Stjórmálamenn eru kosnir til að stjórna samfélaginu og það eiga þeir að gera samkvæmt bestu samvisku. Hjásetustjórnmál skila seint árangri og mér finnast það heldur litlir karlar sem taka lítinn þátt í stefnumótun og hugmyndasmíð mæti svo til leiks troðfullir af gagnrýni og neikvæðni og sitja síðan hjá í lokin. Þetta finnst mér að beri vott um pólitískt hugleysi eða ábyrgðarleysi. Okkur sem kosin erum til verka ber að vinna fyrir umbjóðendur okkar af ábyrgð og samkvæmt bestu samvisku. Þeir ætluðust örugglega ekki til að við sætum hjá í flestum málum. Það er heiðarlegt að hafa afstöðu og standa við hana en hitt er víst billegast sort stjórnmála og til lítils sóma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Mér dettur helst í hug Gunnar Svavarsson og sf í Hafnarfirði.

Óðinn Þórisson, 20.7.2007 kl. 09:27

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Mér kemur í hug einn ákveðin ,,stjórnmálamaður" í bæjarstjórn Akureyrar hann þekkja flestir fyrir það eitt að sitja næstum alltaf hjá.

Páll Jóhannesson, 20.7.2007 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 818230

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband