Er þetta kaldhæðni ?

Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sté í pontu og lýsti ánægju sinni með áhuga stjórnarandstöðuþingmanna á formanni flokks síns.

„Alveg hrífst ég af hvað stjórnarandstaðan er hrifin af formanni mínum og ég er ekki hissa á því.

Því það er náttúrulega maður sem að allir vilja hafa með sér því því hann er lausnamiðaður og mikill hugsuður og það er kannski svolítið annað en margir hér í þessum þingsal sem nota heldur tímann í eilífst nöldur heldur en uppbyggilegt starf.“

___________________

Lausnamiðaður og mikill hugsuður ?

Er þetta kaldhæðni hjá þingflokksformanninum eða hefur eitthvað farið framhjá þingi og þjóð ? 

Þingflokksformanninum finnast umræður í þingsal nöldur þannig að hugarfarið er augljóst á þeim bænum. 

Finnst greinilega algjör óþarfi að formaður Framsóknarflokksins sé að eyða dýrmætum tíma hugsuðar í að hlusta á nöldur allan daginn.

Er allt í lagi í Framsóknarflokknum ? 


mbl.is Sigmundur eftirbátur forvera sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Einhvern tíma las ég sögu sem hét ,,Drengurinn með ráðagerðirnar"   Hún fjallaði um strák sem allt þóttist vita og geta en kom svo aldrei neinu í verk.

Það er vonandi að Sigmundur Davíð verði ekki ,,forsætisráðherrann með ráðagerðirnar"   

Þórir Kjartansson, 19.3.2014 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 818112

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband