Átök og verkföll í boði L.Í.Ú og S.A.

 

„Ég lít svo á að tækifæri atvinnurekenda til þess að fara þessa atvinnuleið sem þeir hafa lagt mikla áherslu á, hafi þeir glutrað úr höndum sér með framferði sínu fyrir páska og í raun og veru verðum við ekki vör við annað en að það sé bara það sama upp á teningnum núna. Það er búið að gera menn andhverfa því að fara þessa leið,“ segir Gylfi.

Þjónkun SA við LÍÚ stefnir ástandinu í þjóðfélaginu í átök og voða. Í upphafi ferðamannavertíðar stefnir í verkföll með skelfilegum afleiðingum.

S.A. ákvað að víkja til hliðar heilbrigðri skynsemi og ætlaði að nýta sér ástandið í þjóðfélaginu til að tryggja stórútgerðarmönnum forréttindi sín og eignarhald á þjóðarauðlindinni.

Auðvitað hafa þeir gengið of langt og nú stefnir í átök. Einnig virðist allt traust brostið og verkalýðshreyfingin hefur nú afskrifað svokallaða atvinnuleið SA sem í sjálfu sér hefði verið skynsamleg lausn.

Að mínu mati hafa Samtök atvinnulífsins gert mikil mistök og sárgrætilegt að horfa á menn ganga í björg fámennrar forréttindastéttar og fórna samkomulagi og friði á vinnumarkaði.

Það er ekki nokkur vafi í mínum huga. Villi og Vilmundur hafa leitt samtök sín í ógöngur og fórnað tækifæri sem ef til vill býðst ekki aftur.


mbl.is Verkföll upp úr 20. maí?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Landsamband smábátaeigenda eru samtök þeirra útgerðarfélaga sem ekki eru í LÍÚ.Landsamband smábátaeigenda hafnar alfarið þjóðnýtingarleið Samfylkingarinnar á sjávarútvegum.Þetta getur þú allt séð með því að skoða landsfundarsamþykktir LS.Öll félög sjómanna hafna líka ríkisvæðingu sjávarútvegsins eins og kom fram í endurskoðunarnefdinni.En lygar ykkar Samfylkingarfólks á sér engin takmörk.Og stanslausar hótanir ykkar hafa nú leitt til allsherjarverkfalls.Rafvirkjaskoffíin Samfylkingarinnar var borubrattur í Kastljósinu.Hans menn eiga kannski að fara í verkfall í Noregi þangað sem þeir eru flestir flúnir undan Samfylkingunni,Eða þeir eiga kannski að fara í verkfall á atvinnuleysisbótum.Maðurinn er---, eins og forsætisráðherran.

Sigurgeir Jónsson, 27.4.2011 kl. 20:28

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jón Ingi þú hlítur að vera sammála mér að ríkisstjórnin á stóran hluta í því að svona er komið.
Það verður engin friður á vinnumarkaði fyrr en ríkisstjórnin fer frá enda hefur hún fátt gert annað en að efna til ófriðar og sundrungar þann tíma sem hún hefur setið.

Óðinn Þórisson, 27.4.2011 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 818141

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband