Loka Leifsstöð og banna skipakomur.

 

Heyrst hefur að standi til að leggja fram tillögur um að loka Keflavíkurflugvelli og hafnir landsins megi aðeins nýta fyrir fiskiskip.

Einnig hefur verið uppi orðrómur um að ekki megi flytja út fisk og internetið verði bannað.

Ekki er víst að þessar tillögur nái fram að ganga frekar en þær sem snúa að ESB og AGS.

 


mbl.is Vilja hvorki ESB né AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Tillögur Samfylkingarinnar verða alltaf skrítnari og skrítnari, hins vegar eru þær alveg í samræmi við þá þránun sem  afleiðingar stjórnarsamstarfsins færir okkur.

Sigurður Þorsteinsson, 15.1.2010 kl. 21:17

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Jón Ingi, það er yndislegt að fylgjast með vaxandi örvæntingu ykkar Evrópusambandssinna :)

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.1.2010 kl. 22:22

3 identicon

Það er undarlegt að Vinstri-Grænir skuli vera að ýta eftir svona einangrunarstefnu. Sérstaklega í ljósi þess að svona stefnur hafa alltaf kostað þjóðfélög meira en samvinnan við nágrannalöndin.

Þetta er skömm Vinstri-Grænna.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 22:45

4 identicon

Hjörtur, þegiðu. Ætlaru annars ekki að fara að stofna nýjan stjórnmálaflokk sem gengur útá útlendingahatur og fóbíu eins og þú gerðir árið 2000, við vitum öll hvað þú kallaðir síðasta stjórnmálaflokk sem þú stofnaðir. Þú kenndir hann við framfarir, en staðreyndin er sú að þessi stjórnmálaflokkur þinn var ekkert nema argasta afturhald og útlendingahatur.

Þú ert til háborinnar skammar sem manneskja!

Jón Frímann (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 22:48

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ekki verð ég vör við neina örvæntingu hjá okkur ESB sinnum nema síður sé. Umsóknarferlið á áætlun og ICESAVE ruglið ekki að tefja það neitt. Ég horfi björtum augum fram á veginn varðandi ESB. Við skulum endilega leyfa andstæðingunum að gaspra. Þegar farið verður að kynna okkur samninginn mun afstaðan breytast hjá mörgum og þeir ganga til liðs við okkur ESB sinnana

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.1.2010 kl. 00:12

6 identicon

Ekki var hér Leifsstöð fyrir EES, og ekki hingað siglingar Fyrir EFTA. Fiskur og útflutningur á honum hefur ásamt landbúnaði verið botnlaus byrði á borgurum landsins.  Eða þannig

Jón Logi (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 00:24

7 Smámynd: Sigurjón

Má ég hlæja að þér Hólmfríður þegar umsóknin að ESB verður felld í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Sigurjón, 16.1.2010 kl. 03:10

8 Smámynd: Sigurjón

Já, þessi færzla höfundar er einnig hlægileg í hæsta máta!

Sigurjón, 16.1.2010 kl. 03:12

9 Smámynd: Óskar Ingi Gíslason

Wow, hverslags uppgjafar tal er þetta alltaf í samfylkingarmönnum, getiði ekki brett upp ermarnar og tekið á málunum eins og sönnum Íslendingum sæmir í stað þess að fara alltaf út í hræðsluáróður um að allt fari til helvítis ef ykkar skoðanir eru ekki samþykktar, leiðinda væl alltaf hreint!!

Óskar Ingi Gíslason, 16.1.2010 kl. 04:51

10 Smámynd: Víðir Benediktsson

"Þegar farið verður að kynna okkur samninginn mun afstaðan breytast hjá mörgum og þeir ganga til liðs við okkur ESB sinnana"

Þessa málsgrein sá ég einhvesstaðar í athugasemdum hér að ofan og staðfestir það sem ég hef alltaf sagt, ESB eru trúarbrögð. Það virðist engu skipta hvernig samningurinn kemur til með að líta út.

Víðir Benediktsson, 16.1.2010 kl. 06:09

11 Smámynd: Óðinn Þórisson

Landsfundarályktun vg 2009 um esb

" Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur nú sem fyrr að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins.  "

Steingrímur sagði nú um daginn að hann hefði sannfærst enn betur á þessu ári um að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan ESB -

ESB-aðild verðurr hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu - það er alveg klárt mál -

Óðinn Þórisson, 16.1.2010 kl. 10:28

12 Smámynd: Elín Guðjónsdóttir

Heimsyfirráð eða dauði!!!

Elín Guðjónsdóttir, 16.1.2010 kl. 17:49

13 Smámynd: Auðun Gíslason

Kúgunin kemur frá ESB og AGS!  1. kafli Icesavesögunnar.  Hverjir gengu undir ok/skuldbingar ESB og AGS!

Auðun Gíslason, 16.1.2010 kl. 18:58

14 Smámynd: Auðun Gíslason

skarfur - Hausmynd

skarfur

Flokksformennirnir semja og semja hver við annan!  Og segjast sumir þeirra hafa góða trú á, að Hollendingar og Bretar fáist að samningaborðinu.  Stjórnarandstöðunni tókst með lýðskrumi að þvinga ríkisstjórnina í viðræður við sig.  Að þeim takist hið sama með Breta og Hollendinga má með réttu efast um.  Hollendingar og Bretar hafa enga þörf fyrir að semja við Íslendinga uppá nýtt.  En Íslendingar verða í mikilli klemmu verði enginn samningur um málið gildur!

„...en ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að Evrópusambandið hefði átt að standa miklu nær viðræðuferlinu," sagði Bjarni. Bjarna má benda á samning sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði 16. nóvember 2008 við ESB. Þar voru lagðar línurnar um samningana, hin umsömdu viðmið. Ríkjunum var svo látið eftir að semja um smáatriðin. Í Viljayfirlýsingu Íslands og AGS 9. grein kemur einnig fram sama afstað. Bjarni Ben hefur endurtekið í sífellu, að samningurinn frá í haust sé ósanngjarn og að engin ríkisábyrgð gildi um innistæðutryggingar. Samt greiddi Bjarni einmitt atkvæði sitt tillögu um ríkisábyrg á innistæðum í íslenskum bönkum á Evrópska efnahagssvæðinu haustið 2008.

AGS hefur verið gagnrýndur fyrir þá afstöðu sem hann tók til endurskoðunar áætlunarinnar um endurreisnina eftir að ÓRG vísaði lögunum til þjóðarinnar.

 Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri undirrituðu Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 

Í níundu grein þeirrar yfirlýsingar stendur orðrétt:

„Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar." (15. nóvember 2008). 

Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB.

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær. (16. nóvember 2008).

Auðun Gíslason, 16.1.2010 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 818082

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband