Afneitun og minnisglöp

" Höskuldur Þór kvaðst í ræðu sinni ósammála þeirri túlkun Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra að tengja mætti Icesave-málið við einkavæðingu banka."

Höskuldur er með, þrátt fyrir ungan aldur og nýliðaskírteini á þingi, haldinn gamla Framsóknarsyndróminu. Hann er með sömu minnisglöp og afneitunargen gömlu Framsóknarmannanna sem voru meðsekir í sukki og einkavæðingu Sjálfstæðisflokksins.

Hann afneitar þeirri augljósu staðreynd að hrun efnahagslífs á Íslandi megi rekja beint til einkavæðingar banka og einkavinavæðingar í framhaldi af því. S-hópurinn var skilgetið afkvæmi Framsóknarflokksins og Davíð Oddsson handvaldi Björgúlfana til athafna í Landsbanka.

Það er því nokkuð ljóst að minnisglöp og afneitun Framsóknarflokksins hafa gengið yfir landamærin og í nýja þingmenn sem höfðu tækifæri að búa til nýtt upphaf fyrir flokkinn.

Þess í stað falla þeir í þá gryfju að verja svínarí Framsóknarflokksins og glata tækifærinu sem kannski kemur aldrei aftur.

Það trúir enginn á nýtt upphaf þessa flokks þegar nýliðarnir verja fortíðina með oddi og egg.


mbl.is Ekki hagstæðari samningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Það er alltaf sami strigakjafturinn á þér Jón og engin eru rökin .... er ekki best þegar menn eru jafn rökþrota og upphrópanir þínar eru til vitnis um að menn sitji á strák sínum kynni sér málin og komu svo tvíefldir til leiks þegar þeir hafa eitthvað til málanna að leggja annað en skítkast og dylgjur ?

G. Valdimar Valdemarsson, 22.10.2009 kl. 14:54

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvað er rangt þarna... ágæti félagi ??

Jón Ingi Cæsarsson, 22.10.2009 kl. 15:56

3 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Hvorki þú eða Steingrímur J hafa fært fyrir því rök að kenna megi einkavæðingu íslensku bankanna um fall alþjóða fjármálamarkaða.  

G. Valdimar Valdemarsson, 22.10.2009 kl. 16:05

4 identicon

Mér finnst það nú langsótt og léleg lumma að kenna þessum tveimur flokkum um athafnir eigenda bankanna.  Ef ég sel þér bíl, þú keyrir hann fullur og slasar einhvern - ætlarðu þá að kenna mér um það?  Þú hlytir að vera ábyrgur - jafnvel þó ég hefði selt þér bílinn á alltof lágu verði og aldrei fengið hann greiddan?  Eða ættum við kannski að skella skuldinni á bílasalann?:)

Bjössi (IP-tala skráð) 22.10.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 818128

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband