Framsókn mun hverfa á næstu árum... að mestu.

 Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað Framsóknarflokkurinn er í dag. Þegar ég var að alast upp í stjórnmálum var Framsóknarflokkurinn allstaðar. Nánast alltaf í ríkisstjórnum, forsætisráðherrann var oftar en ekki Framsóknarmaður og þeir voru allsstaðar og allt um vefjandi. Árin 1971-1991 hafa gjarnan verið kallaður þeirra tími. Árin frá 1959 - 1971  voru þeir alltaf utan stjórnar.

Síðan kom smá hlé síðan hófst hækjutímabil Framsóknar sem stóð í 12 ár, frá 1995 - 2007. Á þeim tíma studdi Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkinn við einkavinavæðingu þjóðfélagsins sem endaði með því að það kerfi hrundi til grunna með afleiðingum sem ekki sér fyrir endann á og aðrir eru að reyna að hreinsa upp þessar vikur og mánuði.

Hvað segir svo um Framsóknarflokkinn á netinu ?.

Framsóknarflokkurinn er íslenskur frjálslyndur félagshyggjuflokkur.[1] Hann var stofnaður 16. desember 1916 með samruna Bændaflokksins og Óháðra bænda og er elsti starfandi stjórnmálaflokkurinn á Íslandi. Framsóknarflokkurinn var stofnaður í bændasamfélaginu og sótti því kjörfylgi sitt framan af til landsbyggðar og ungmennafélagshreyfingarinnar. Í seinni tíð hefur hann einnig sótt fylgi til menntafólks og miðjufólks og hefur lagt áherslu á að styrkja menntun og atvinnulíf.

Á heimasíðu flokksins er stefna Framsóknarflokksins útlistuð. „Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jafnaðar. Hann stendur vörð um stjórnarfarslegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði Íslendinga, byggt á lýðræði, þingræði og réttaröryggi. Framsóknarstefnan setur manninn og velferð hans í öndvegi.“

Svo mörg voru þau orð.

Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér framtíð Framsóknarflokksins. Hér áður fyrr var flokkurinn pólítísk deild SÍS, Búnaðarbanka, kaupfélaganna og bændasamtakanna. Í dag eru aðeins Bændasamtökin eftir og virðist sem hluti af áhrifamönnum flokksins eigi litla samleið...td í ESB málum.Bændasamtökin beita sér mjög í andstöðunni við ESB og nota Bændablaðið purkunarlaus í þeim tilgangi. Bændasamtökin fá meira en hálfan milljarð á fjárlögum sem þeir nota að hluta til að fjármagna þennan andstöðuáróður. Það má því segja að þeir séu á ríkisjötunni í andstöðu sinni við ESB.
Framsóknarflokkurinn hefur verið að gæla við ESB og margir af forustumönnum hans eru ESB sinnar. Þessi naflastrengur virðist því brostinn og þar með síðasti tilgangur Framsóknarflokksins á því sérsviði sem hann hefur beitt sér síðustu áratugi horfinn.

Hver er þá tilgangur og hryggstykkið í þessum flokki annað en bakland persónulegra væntinga þeirra manna sem þar eru fremstir í flokki ? Flokkurinn var orðinn pólitískt árhrifasvæði fyrir menn sem voru að sölsa undir sig eignir þjóðarinnar í gegnum einkavæðinguna.
Núna virðist ástandið innan flokksins vera sérkennilegt. Hann er greinilega búinn með sitt besta og tilvist hans og tilgangur er óljós. Ekkert í stefnuskrá hans er sérkennandi fyrir Framsóknarflokkinn sem slíkan og hann hefur alls ekki unnið eins og félagshyggjuflokkur eins og segir í stefnuskránni. Miklu frekar þjónn akveðinna fjármagnseigenda sem hafa notað flokkinn til verka sem ekki sæma stjórnmálaflokki með fallega stefnuskrá.
Núverandi formaður virðist alls ekki ráða við ástandið og hefur málað flokkinn út í horn sem ótrúverðugan og áhrifalausann. Helmingur þingmanna flokksins er þögull og tekur ekki þátt í krossferðum formanns og þingmanns flokksins sem hefur tekist að þurrka burtu þann litla trúverðugleika sem eftir var.
Framsóknarflokkurinn var einu sinni 45% flokkur í sumum landsbyggðarkjördæmum. Það fylgi er nánast alveg horfið í flestum kjördæmum en hann er þó enn með 20-27% fylgi í landsbyggðarkjördæmunum...sumum þeirra í það minnsta. Það fer þó þverrandi þegar á heildina er litið.
Ég held að Framsóknarflokkurninn muni hverfa að mestu á næstu árum. Hann mun missa fótfestuna endanlega á þéttbýlisvæðum suðvesturlands og með breyttu og réttlátara kosningakerfi og vægi atkvæða mun hann fara niður í einsstafsstöðu að meðaltali. Þá fer hann að líkjast bændaflokkunum á Norðurlöndunum að stærð og málflutningi en félagshyggjufólk mun leita inn á þá flokka sem fyrir eru með þannig stefnuskrár nærri miðju stjórnmálanna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ef ég vissi ekki betur þá kæmi þeim sem les skrif þín Jón ekki annað til hugar en þú sætir á tröppum ráðhússins í R.vík við skrif þín.Það er ótrúlegt að nokkur maður sem búsettur er á landsbyggðinni skuli hafa þá hugsjón að þeim  útrásarvíkingum sem upprunnir eru í Borgartúninu í R.vík. og sett hafa landið á hausinn með dyggri hjálp Samfylkingarinnar skuli endanlega afhent öll völd í landinu.Og  þessar mínúturnar er Samfykingin að bauka við að ganga endanlega frá sjálfsvirðinu þjóðarinnar með því að leggast kylliflöt eins og hundur fyrir framan ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.Hræðsla Samfylkingarinnar við Framsóknarflokkinn er eðlileg.Framsóknarflokkurinn var og er enn eini íslenski flokkurinn sem hægt er að kalla íslenskan jafnaðarflokk.Samfylkingin er söfnuður ráðleysingja sem safnað var saman kringum tjörnina í R.vík. og er ekkert annað en aumlegt útibú frá evrópskum krataflokkum sem vilja skattpína íslendinga og komast yfir auðlindir landsins.XB ekki ESB.

Sigurgeir Jónsson, 17.10.2009 kl. 22:41

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þú ert eitthvað að ruglast í ríminu Sigurgeir..en hvað um það. 

Jón Ingi Cæsarsson, 17.10.2009 kl. 22:43

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Má sem sagt skilja þennan pistil þannig að þeir sem ekki eru á sömu skoðun og Samfylkingin eigi ekki að þiggja fé úr ríkissjóði?

Víðir Benediktsson, 17.10.2009 kl. 22:47

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Orðin hækja og kvíga í stjórnmálum kom fyrst fram á tímum viðreisnarstjórnarinnar sem svo kallaði sig,þótt um enga viðreisn væri að ræða heldur var það mokveiði á síld sem bjargaði landinu.Þá var Alþýðuflokkurinn gamli sem er hryggjarstykki Samfylkingarinnar,hækja íhaldsins og formaður Alþýðuflokksins var kallaður kvígan.Á  þeim tíma og hingað til hefur engum dottið í hug að evróps kratabrenglun væri nothæf við að stjórna landinu og er það að sannast þessa dagana.

Sigurgeir Jónsson, 17.10.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 818125

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband