Mun ýta málum af stað.

Ákvörðun iðnaðarráðherra er góð. Hún tryggir að mál á svæðinu fara að hreyfast. Alcoa hefur haft málið í gíslingu og engir aðrir geta komist að til að hefja rannsóknir eða koma hjólum af stað.

Þessi ákvörðun setur allt málið á hreyfingu, Alcoa veit að þeir verða að bregðast við og taka ákvarðanir en geta ekki beðið með það árum saman eins og einkaréttur þeirra til mála tryggði.

Sveitarfélög og fyrirtæki eru í bullandi vandræðum af því Alcoa hefur sett mál í frost og því eru allir sem hafa lagt fjármuni í orkurannsóknir og annað komir í mikil vandræði því lán sem tekin hafa verið hafa hækkað úr öllu valdi og eru ekki að skila neinum tekjum enn og hætt við að langt væri í það fái engir að keppa um orkuna á jafnréttisgrundvelli.

Það er aðeins verið að afnema einkaleyfi Alcoa af orkunni á svæðinu en þeir hafa eftir sem áður alla möguleika á að keppa við aðra á jafnréttisgrundvelli en verða nú að bregðast við ef þeir vilja tryggja sig áfram.


mbl.is Vill fund í iðnaðarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það fer ekkert á milli mála hvar þú ert staddur í pólitíkinni, þetta er einhver langsóttasta söguskýring sem ég hef nokkurn tíma séð.  Þú gengur álíka langt í að verja "vitleysuna" og Hannes Hólmsteinn og þá er nú langt gengið.

Jóhann Elíasson, 28.9.2009 kl. 12:16

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Veit örugglega jafn mikið um þetta og þú Jóhann

Jón Ingi Cæsarsson, 28.9.2009 kl. 12:52

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég efast ekki um vitneskju þína í þessum málum en hins vegar efast ég um GETU þína til að VINNA ÚR þessari vitneskju þinni.

Jóhann Elíasson, 28.9.2009 kl. 13:05

4 identicon

Það er nú ekki lengra síðan í fyrir síðustu kosningar að frambjóðendur Samfylkingarinnar í NA voru nú á öðru máli en þú nú.   Þið ætlið að láta VG hafa völdin og eru ugglaust stoltir af.  Eins  er það með Vaðlaheiðargöngin !

Legg til að þið stofnið Eyðibýlastofnun og setjið Álfheiði Ingadóttur yfir hana ?  Markmiðið með slíkri stofnun yrði að eyða byggð ofanjarðar á landsbyggðinni....

Ágúst J. (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband