Ánægður með Atlantsolíu.

Ég er viðskiptavinur Atlantsolíu. Daginn góða þegar hækkanir urðu hjá flestum olíufélögum hikuðu þeir og ég fyllti á bílinn minn á "gamla verðinu" næsta morgun.

Nú er ég að fá skýringar á þessu hiki... "Hugi Hreiðarsson, forstöðumaður kynningar- og markaðsmála hjá Atlantsolíu, gagnrýnir misvísandi upplýsingar sem félagið fékk í aðdraganda lagabreytinganna frá yfirvöldum: „Mín persónulega skoðun er sú að betur hefði mátt standa að þessum breytingum og komast hjá því að valda þessum óþægindum:"

Í morgun heyrði ég á Ruv að Atlantsolína ætlað að senda mér til baka þann mismun sem innheimtur var með ólögmætum hætti á tímabili. Það er allt önnur vinnubrögð en hjá flestum hinna þar sem þau ætla annað hvort ekki að gera það, þá með að setja sig í sjálfskipaðar stellingar og gefa annarra manna fé til líknarmála sem mér finnst afar vafasamt, eða þá viðkomandi þarf að framvísa kvittunum til að fá viðkomandi endurgreiðslu.

Ég er greinilega á góðum stað í viðskiptum þar sem neytandinn og viðskiptamaðurinn er virtur, en mál ekki leyst á forsendum olíufélaganna sem því miður eru allt of oft í fjölmiðlum og umræðunni vegna vafasamra viðskiptahátta.

Takk fyrir Atlantsolía.


mbl.is Samkeppniseftirlitið vill svör um verðbreytingarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 818078

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband