6.1.2009 | 10:07
Fréttablaðið að rúlla ?
Að Fréttablaðið sé í vanda er í sjálfu sér ekki tíðindi. Blað sem byggir á auglýsingum eingöngu hlýtur að lenda í vanda þegar fyrirtækin draga úr auglýsingum og dreifingar, efnis og launakostnaður hækkar upp úr öllu valdi. Fríblöðin í Danmörku hafa verið að rúlla eitt af öðru af sömu ástæðum.
Ef Fréttablaðið gefst endalega upp gerir það fjölmiðlun fátæklegri á Íslandi. DV er varla marktækt fréttablað eins og efnistök þeirra eru í dag og Mogginn rær lífróður. Kannski er fréttmennskan og fjölmiðlunin hægt og bítandi að færast á netið að fullu.
Hætt er við að fækkun útgáfudaga rýri samkeppnisstöðu blaðsins enn meir er orðið er. Jafnframt er fróðlegt að fylgjast með hvernig dreifingaraðila Fréttablaðsins, Pósthúsinu ehf reiðir af. Af sömu ástæðu því tilvist þess fyrirtækis og afkoma byggir að stærstum hluta á dreifingu Fréttablaðsins.
Stór og sí stækkandi hópur manna flettir aldrei prentmiðlum og sækja upplýsingar og fréttir á netið. Ef til vill er tími hins prentaða fréttamáls á enda ?
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig fjölmiðlun og fjölmiðlum á Íslandi reiðir af á næstu misserum og árum.
Útgáfudögum Fréttablaðsins fækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.