Merkileg afstaða og þó ekki.

Siv er ekki á leið í framboð til formanns. Mér þóttu það líka sérkennilegar fréttir að hún ætlaði í það, því þeir sem sækja að forustunni eru ekki hluti af valdahópnum eða forusturfólkinu. Það virðist mikilu heldur vera grasrótarhópur sem hæst hefur haft um þessa leið.

Annars er ég svolítið hissa á forustu flokksins. Þeir ná ekki að tengja fylgisleysi flokksins við fortíðarvanda sem tengist þessum ráðamönnum. Guðni, Valgerður, Siv og fleiri voru hluti að þeirri forustu sem setti flokkinn í þessar ógöngur á síðustu árum. Þetta er fókið sem ber ábyrgð á fjármála og efnahagsstefnunni árin 1995 - 2007 þegar bankarnir voru gefnir og nýfrjálshyggjunni gefin laus taumur. Þetta er sama fólkið og ber ábyrgð á að Íslands studdi innrásina í Írak, og þetta er fólkið sem opnaði á hinn tryllta dans á húsnæðismarkaði með að leggja grunn að 80 - 100% lánastefnunni á fasteingamarkaði.

En Siv ætlar að styðja Guðna sem er skiljanlegt því ef grasrótin nær að sópa þessari forustu út úr valdastöðum flýtur Siv með í þeim hreinsunum enda hluti af henni þó svo hún hafi verið sett niður á sínum tíma.


mbl.is Siv ekki á leið í formannsslag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ef við gefum okkar að það verði kosningar í vor eins og Ágúst Ólafur telur að geti orðið þá væri það algert glapræði fyrir Framsókn að fara í þær kosningar með Guðna sem formann nema það sé á stefnuskrá flokksins að loka honum.

Óðinn Þórisson, 16.11.2008 kl. 13:27

2 identicon

Það er bara eins og það sé 2004 hérna.. Samfylkingarmennirnir Jón Ingi og Össur hafa ekkert til að tala um nema Framsóknarflokkinn..

Samt eru Framsóknarmenn ekki það lélegur pappír að Össur vill fá þá í Samfylkinguna..

Henrý (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 15:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 818208

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband