5.4.2008 | 22:56
Lýðskrum og kjaftæði.
Það er ótrúlegt að lesa það sem í þessari frétt stendur. Það er logið purkunarlaust upp á ráðherra Samfylkingarinnar. Formaðurinn Ingibjörg Sólrún mælti gegn álveri við Helguvík á síðasta flokkstjórnarfundi fyrir viku og umhverfisráðherrann talaði gegn stóriðju á því svæði fyrir nokkrum dögum og VG hefur kosið að snúa út úr þeirri neyðarráðstöfun hennar sem framkvæmd var í tengslum við það.
Því miður hefur þessi ámátlegi fjallagrasaflokkur ekkert að bjóða landsmönnum en lýðskrum og afturhaldsraus.... sorglegur málflutingur.
Guði sé lof að þetta lið fór ekki í ríkisstjórn....
Stóriðjustefna drifin áfram af ráðherrum Samfylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heill og sæll; Jón Ingi !
Blessaður vertu. Þetta illyrmahyski; Samfylkingin, sem þú, hrekklaus drengurinn, hefir látið gabbast, til dapurlegs fylgilags við, er samansafn verstu hrægamma íslenzkrar stjórnmála sögu, og er þá mikið sagt, Jón minn.
Vona; um leið, og þú hættir að hnýta í íslenzka bændur, sem aðra burðarása íslenzks þjóðlífs, að þú megir yfirgefa, hina snautlegu Samfylkingu, með nokkurri sæmd, og hafa heiður einann af.
Og mundu. Ekki kenna bændum um, snautlega skítmennsku Framsóknarflokksins, sem jú, vel að merkja, átti stórann þátt, í niðurslagi kaupfélaganna, m.a.
Með beztu kveðjum, norður yfir heiðar / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 23:28
Eitthvað skortir á lesskilning þinn ágæti Óskar...hvergi hef ég hnýtt í bændur...
ef þú heldur að bændur og kaupfélög hafi verið eitt og hið sama er það mikill misskilningur.
Hvað varðar Samfylkinguna er ég einn af stofnendum hennar og er hreykin af
Jón Ingi Cæsarsson, 6.4.2008 kl. 00:55
..og Þórunn góð í Silfrinu
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 13:49
Heill og sæll; á ný, Jón Ingi og aðrir skrifarar !
Jón Ingi ! Ég hlýt; að biðja þig afsökunar, hafi ég lesið mér rangt til, um álit þitt, á íslenzkri bændastétt. Mér rennur nokkurt blóð til skyldu, varnar íslenzks landbúnaðar, hvar ég er gamall starfsmaður Kaupfélags Árnesinga, og þar áður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (húss no. 36), á Stokkseyri, m.a.
Vil samt; hvetja þig til, að endurskoða þátttöku þína, í hinni óíslenzku Samfylkingu, þrátt fyrir stofn aðild þína, að þessum ósköpum.
Einhvers staðar, á spjallsíðu hjó ég eftir, að Gísli Baldvinsson, sá ágæti drengur kallaði mig Árnes- eða Árnesingagoðann, fyrir skömmu. Mikill heiður að, þótt tæpast verðskuldi, enda er ég Borgfirzkur strigakjaftur, að hálfu, eins og þið Gísli hafið; óefað, margsinnis lesið, af skrifum mínum, enda tala ég enga tæpitungu, þá á mér brenna hin ýmsu viðfangsefni, hverju sinni.
Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 20:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.