Stórundarlegar niðurstöður.

Þá sögðust 27% þeirra, sem tóku afstöðu, vera ánægð með nýjan meirihluta í borgarstjórn, 62% sögðust vera óánægð og 11% sögðust hvorki ánægð né óánægð. Svo eru 16% Reykvíkinga ánægð með nýjan borgarstjóra... 64 % óánægð, 24 % hvorki né.

Mér finnast þetta merkilegar niðurstöður. Ég er eiginlega stórhissa hversu margir segjast ánægðir með nýjan meirihluta. Það finnst mér óverðskuldað miðað við allt og allt.

Og svo að 16% segist ánægðir með nýjan borgarstjóra. Hann getur vel við unað og mér kemur nokkuð á óvart hversu mikils trausts hann nýtur eftir allt saman.

Kannski er 27% meirihlutinn og 16% borgarstjórinn glúrnari en marga grunaði.


mbl.is Fáir ánægðir með nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Már Barðason

Spurningarnar voru reyndar dálítið einkennilegar, sumar hverjar. Hvað var t.d. átt við þegar spurt var hvort fólk væri ánægt með borgarstjórann? Var verið að spyrja um hvort fólk væri ánægt með störf hans, eða var verið að spyrja menn hvort þeir væru ánægðir með að hann væri orðinn borgarstjóri, eða eitthvað allt annað? Hafi gallúpmenn verið að spyrja um ánægju með störf borgarstjóra finnst mér það fullkomlega ósanngjarnt, sama um hvern er að ræða. Menn verða að hafa fengið að sitja lengur á þeim stól en í fáeina daga áður en þeir fara í frammistöðumat hjá almenningi.

Helgi Már Barðason, 2.2.2008 kl. 17:27

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Aha! Þetta var þá bara óviðurkvæmileg spurning hjá Gallúpi?

Jón Halldór Guðmundsson, 3.2.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 818080

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband