Stefnubreyting - mjög gott mál

Þar er komið að því. Slegið er á gengdarlausa uppbyggingu álvera á Íslandi. Það er ekki langt síðan nokkur slík stykki voru á dagskrá á Reykjanesi og á Suðurlandi. Nú er ljóst að af því verður ekki. Samfylkingin hefur talað fyrir breytingu á stefnu Landsvirkjunar í orkusölu og nú hefur orðið af því. Þess í stað á að beina sjónum að öðrum valkostum í uppbyggingu iðnaðar og atvinnutækifæra á Íslandi. Þetta eru afar góð tíðindi og þar með hverfur ásýnd Framsóknarflokksins af uppbyggingu atvinnulífs til framtíðar.

Smátt og smátt er að koma í ljós hversu mikil landhreinsun var að losna við Framsóknarflokkinn úr ríkisstjórn. Stöðnuð og þröngsýn sjónarmið eru á undanhaldi og skyndilega fá landsmenn aðra sýn á möguleika okkar í atvinnumálum. Ótrúlega stuttan tíma hefur tekið að breyta þessum málum og ljóst að Framsóknarflokkurinn og ráðherrar hans hafa verið fastir í hjólförum sem þeir sáu ekki uppúr.

Nýr iðnaðarráðherra fylllir þjóðina bjartsýni og þó svo Valgerður og fleiri Framsóknarmenn reyni að tala niður Samfylkingarráðherranna sjá það allir þvílík reginbreyting hefur orðið á ýmsum sviðum þjóðfélagsins. Ég eiginlega get vart beðið eftir því sem utanríkisráherra ætlar að ræða eftir áramótin en boðuð hefur verið sérstök umræða um Evrópumál á vegum þess ráðuneytis. Kannski sjáum við nýja tíma og stefnu í Evrópu og Evrumálum á næsta ári..

PS: Hvað skyldi ergja hinn jákvæða og framfarasinnaða formann VG þegar hann hefur melt þessi nýjustu tíðindi...varla sér hann nokkuð jákvætt í þessu LoL


mbl.is Friðrik: Skylt að þjóna þeim álverum sem fyrir eru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 818208

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband