Íbúafjöldi á Akureyri komin í 17.000

Þá erum við Akureyringar orðnir 17.000. Ég hef haldið því fram lengi og ekki verið mótmælt að á Akureyri hafa að staðaldri mun fleiri búsetu þó lögheimili þeirra sé ekki hér. Þar kemur margt til, hér er fólk mánuðum saman og sumir allan ársins hring við nám. Háskólinn á Akureyri, tveir stórir framhaldsskólar og svo fjöldi fólks sem fyllir orlofstilboð þau sem stéttarfélög og fyrirtæki bjóða upp á í íbúðum um allan bæ. Hér er á milli 250 og 300 orlofsíbúðir sem sjaldan standa auðar. Allt telur þetta og ekki óraunhæft að halda því fram að hér séu 19.000 að jafnaði alla daga ársins. Þetta þyrfti að rannska.

Hér að ofan er ótalinn allur sá fjöldi sem hefur búið hér árum saman, sumir áratugum og hafa aldrei flutt lögheimili sitt til bæjarins. Margir þeirra halda tryggð við gamla hreppinn sinn og telja að þeir séu að gera honum stórgreiða með að eiga þar lögheimili. Það má vel vera að svo sé en hvers á sveitarfélagið að gjalda sem veitir þeim alla þjónustu ?

Gaman er að kíkja aðeins á gamlar tölur um íbúafjölda í tíu stærstu kaupstöðum landsins árið 1901.

Reykjavík..... 5.802    Ísafjörður.... 1.067   Akureyri.... 1.038  Seyðisfjörður.... 783             Skipaskagi.... 767   Eyrarbakki.... 739  Ólafsvík.... 496   Hafnarfjörður.... 374                  Sauðárkrókur.... 350   Stykkishólmur.... 313,

Nokkrar breytingar hafa greinilega orðið á þeirri rúmu öld sem liðin er. Það er ljóst að dreifning íbúa á þessu tíma hefur verið með öðrum hætti en nú er. Í hópi tíu stærstu, eru staðir í öllum landshlutum og Ísafjörður trónir þarna í öðru sæti. Vestfirðir hafa greinilega verið í góðri stöðu á þessum árum. Athyglisverðast finnst mér að sjá Eyrarbakka í þessum hópi en þegar nánar er spáð í það er það auðvitað ekkert skrítið. Allir þessir staðir eiga það sameininglegt að byggja fjöldan á sjávarútvegi og útgerð. Það eru breyttir tíma á Íslandi.    Þó finnst mér merkilegt að Vestmannaeyjar eru ekki á þessum lista.

Heildarfjöldi á landinu í upphafi síðustu aldar var 77.290. Það voru 36.621 karl og 40.669 konur. Það eru helmingi færri en búa í Reykjavík einni í dag.  

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818229

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband