4.7.2007 | 07:19
Undarlegar hryðjuverkaárásir.
Þetta er undarlegt ferli sem við höfum orðið vitni að undanfarna daga á Bretlandi. Nokkrar tilraunir eru gerðar til hryðjuverkaárása en þær annað hvort misheppnast eða er komið í veg fyrir þær. Þetta virkar á mig sem að þessir meintu hryðjuverkamenn séu leikmenn og það meira að segja klaufskir leikmenn.
Þeir ætla að nota gas sem meginuppstöðu sprenginga en flestir sem þekkja gas og gaskúta vita að það þarf mikinn eld og lengi til að sprengja slíka kúta. Þeir skilja eftir farsíma í bílum sem hægt er að nota til að rekja mál beint til þeirra og þeir leggja bílum ólöglega á áberandi stöðum og af áberandi gerð þannig að eftir þeim er tekið. Bensín er illa frágengið í þeim og fer að leka. Bíl er ekið á flughöfnina í Glasgow en stálbitar sem settir voru í dyraumbúnað nýlega stöðva bílinn. Fagmenn hefðu vafalaust tekið eftir þessu.
Þetta er allt svo ótrúlega klaufalegt að maður gæti haldið að þetta sé einhverskonar forleikur að því að draga athygli frá öðru og faglegra. Sú hugsun veldur mér leikmanninum áhyggjum og ég held að breska lögreglan hljóti að deila þeim áhyggjum með mér.
Varaði við hryðjuverkum á Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 818824
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er akkúratt það sem ég hugsaði eftir að hafa heyrt allar þessar fréttir! Ég á bágt með að trúa því að þeir séu svona misheppnaðir.. en maður veit aldrei. Vonandi eru þeir það!
Karitas (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 13:06
Ég deili þessum áhyggjum líka með þér, þetta er allt hið einkennilegasta. Alveg eins og eftir 11. september er alltof margt sem stenst ekki eða er með ólíkindum við frásögn og skýringar yfirvalda á atburðunum. Sjá nánari skrif á mínu eigin bloggi.
Guðmundur Ásgeirsson, 4.7.2007 kl. 14:01
Mjög rétt, EF þetta voru mislukkaðar árasir (sem það í rauninni voru) en ekki eitthvað annað eins og hér var verið að segja, þá er það mjög asnalegt því þessir sömu menn áttu að hafa rænt 4 flugvélum og hitt 75% af þeim skotmörkum sem þeir ætluðu sér. Sem er líka algerlega fáránlegt. Við erum að sjá mikla spennu byggjast upp í fjölmiðlum varðandi þetta allt saman, spurning hvort það sé viljaverk þessara miðla í þeim tilgangi að réttlæta viðbrögð við einhverju sem á eftir að gerast á næstunni.
Það er eitthvað að fara að gerast sem toppar þetta allt saman, spurning hvað það er? Ég hef lúmskan grun um eitthvað tengt kjarnorkusprengju.....
Einar - No$stradamus (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 23:46
Mikið rétt, þetta er allt voða klaufalegt hjá þeim.
En það sem gerir þetta svona ómarkvert hjá þeim, er það að leyniþjónustur Breta og Bandarríkanna eru með svo mikinn viðbúnað og fjölmenna sveit sem fylgist með öllu.
Þannig eiga þessir hryðjuverkamenn erfitt uppdráttar við að skipuleggja sín voðaverk.
Kveðja, Hörður
Hörður Jónasson, 6.7.2007 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.