Metnaðarfulla áætlun fyrir Oddeyri.

0 2017 00000 5.10. 17-2158Nú liggur fyrir rammaskipulag fyrir Oddeyri og búið að marka línur fyrir svæðið. Þó kom nokkuð hliðarhopp vegna hugmynda verktaka um uppbyggingu sem var í engu samhengi við aðalskipulagið sem samþykkt var fyrir skömmu. En bæjarbúar hafa sagt sína skoðun og aðalskipulagið - rammaskipulag fyrir Oddeyri heldur.

 

En það er ekki nægileg að búa til fallega pappíra og stinga þeim ofan í skúffu. Orðum verða að fylgja athafnir. Við sem búum á Oddeyri vitum að áhugi bæjaryfirvalda og ráðamanna á Akureyri er í skötulíki með örfáum undantekningum. Innviðir hverfisins þarfnast mikillar uppbyggingar, svo mikillar að nauðsynlegt er að gera tímasetta heildstæða áætlun þar sem ásýnd og ástand hverfisins verði tekið til gagngerðar endurbyggingar og endurnýjurnar. Á slíkri áætlun bólar hvergi á og auglýsa þarf eftir áhuga skipulagsyfirvalda, umhverfisyfirvalda og bæjarstjórnar. Engan slíkna áhuga er að sjá í vinnu nefnda bæjarins og bæjarfulltrúa.

 

En hvað þarf að gera ? Langar að nefna örfá atriði sem lengi hefur verið fjallað um án árangurs.

 

  • Uppbygging gatna, þar er ástandið víða afar slæmt.
  • Gangstéttir og gangstígar.
  • Lýsing og ljósastaurar.
  • Auðar lóðr í gömlum götum. ( Þarf að stuða að nýtingu )
  • Rusl og vanhirtar lóðir.
  • Byggja upp ímynd hverfisins.
  • Framtíðarsýn fyrir uppbyggingu á Tanganum.

Margt fleira mætti nefna en ætla ekki að fara í smáatriði í þessum stutta pisli.  Fyrst og fremst er ég að skrifa þetta og fleira í framtíðinni til að eyða tómlæti bæjaryfirvalda Akureyrar gagnvart Oddeyrinni.

 

Við Oddeyringar vitum hvernig staðið var að endurreisn Innbæjarins sem var ekki í sem bestu standi fyrir ekki svo löngu. Núna er staðan til fyrirmyndar á þeim slóðum og Akureyri til sóma.  Því miður er staða okkar hverfis verri og ekki til sóma á mörgum sviðum.

 

Vonandi eykst áhugi bæjaryfirvalda og bæjarfulltrúa á Oddeyri. Skilningur virðist afar takmarkaður á mikilvægi og sögu Oddeyrarinnar og það verður að breytast.

 

Kannski kemur sá tími að ferðamenn og aðrir gangi um Oddeyrina og skoði menningarverðmæti, sögu og falleg hús eins og um Innbæinn. En því miður er staðan víða þannig að það er ekki að gerast núna. Bæjaryfirvöld hafa sofið á verðinum.

 

Vonandi lendir nýja skipulagið ekki í einni möppunni á Skipulagssviðinu, og verði þar að minningum um það sem aldrei gerðist.

 

Ég skora á bæjaryfirvöld og bæjarfulltrúa að vakna af svefninum og búa til framtíðarsýn og uppbyggingaráætlun fyrir Oddeyri.

 

Við eigum hana öll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Þú stendur þig ljómandi vel í þessu máli.

Snorri Hansson, 18.6.2021 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 818230

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband