Zeppelinarkitektinn í ruglinu.

2021 000 se3glin orriOrri Árna­son, arki­tekt hjá Zepp­el­in arki­tekt­um, seg­ir furðulegt að Ak­ur­eyr­ar­bær hafi sniðgengið til­lögu hans og bygg­inga­verk­tak­ans SS Bygg­ir að upp­bygg­ingu á Odd­eyr­ar­reitn­um. Ra­f­ræn íbúa­kosn­ing stend­ur nú yfir á vef sveit­ar­fé­lags­ins og eru þrjár til­lög­ur und­ir. Kosn­ing­unni lýk­ur á morg­un.

 

Orri Árnason arkitekt er í furðulegu ferðalagi. Hann botnar hvorki upp né niður í því að seglatillaga hans skuli ekki vera borin undir atkvæði bæjarbúa.

 

Mikil umræða hefur verið um 11 hæða seglatillögur Orra og í reynd hefur þeim verið hafnað að öllum hagsmunaaðilum, m.a. flugyfirvöldum, hafnaryfirvöldum, Vegagerð, Minjastofnun og mörgum fleirum svo ekki sé talað um hundruð Oddeyringa og annarra bæjarbúa.

 

Arkitektinn er samt svo upptekinn af eigin ágæti að hann skilur greinilega ekki þau skilaboð sem allir vita þó, hugmyndum hans er hreinlega hafnað.

 

Samt sér hann ástæðu til að senda bæjarbúum og bæjarstjórn pillur fyrir að taka ekki með tillögur HANS með í atkvæðagreiðslu bæjarbúa. Þessar tillögur eru úr öllu korti og hreinlega galið að halda að þær séu gjaldgengar í atkvæðagreiðslu hjá bæjarbúum á Akureyri.

 

Auk þess hikar arkitektinn ekki við að halda því fram að deilur um þessi svæði hafi staðið í áratugi. Það rétta er að starfshópur undir minni stjórn setti fram fyrstu hugmyndir um uppbyggingu á Eyrinni og Tanganum 2010 og rammskipulag Oddeyrar var staðfest fyrir örfáum árum.

 

Svo er þessi undarlega vísan í seglin á Pollinum og skútur sem Gránufélagið gerði út fyrir 150 árum+ er í besta falli furðulegt og langsótt fyrir þá kynslóð sem nú gengur um Akureyri nútímans.

 

Það er hreinlega ekkert í þessum 11 hæða kössum sem minnir á segl lítilla skipa fyrir bráðum tveimur öldum. Arkitektar gleyma sér stundum í sínum litla hugmyndaheimi við teikniborðið.

 

Akureyringar eru að kjósa um ásýnd heimabæjar síns á sínum eigin forsendum. Þeir þurfa ekki á hugmyndasmíð arkitekta sem eru í engum tengslum við Akureyringa og Akureyri.

 

Auðvitað skilur maður að arkitekt með metnað vill láta ljós sitt skína. En það ljós sem hann vill troða upp á Akureyri er villuljós úr öllum takti við þann raunveruleika sem hér ríkir.

 

Jón Ingi Cæsarsson 

í Skipulagsnefnd Akureyrar 2002 - 2010.


mbl.is „Bæjarstjórn verður að gyrða sig í brók“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 818236

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband