15.9.2017 | 08:38
Dómgreindarskortur forsætis og dómsmálaráðherra drap ríkisstjórnina.
Ríkisstjórn Íslands undir forsæti Bjarna Ben og Sjálfstæðisflokksins var á brauðfótum frá stofnun.
Í reynd var það bara tímaspursmál hvenær og af hverju hún félli.
Nú er hún fallinn og ástæðan er leyndarhyggja Sjálfstæðisflokksins og dómgreindarskortur forsætisráðherra og sérstaklega dómsmálaráðherra.
Dómsmálaráðherra er meira svo dómgreindarskert í þessu máli að í morgun hefur hún ásakað BF um dómgreindarskort og ábyrðarleysi.
Sér er það nú skilningurinn er að hitt þá heldur.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórntækur, formaður Sjálfstæðisflokksin mun örugglega segja af sér formannembætti
Nú bíðum við öll.
Hver verður framvindan?
Slíta samstarfi við ríkisstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta mál allt er sannarlega með ólíkindum.
Kannski fyrir það fyrsta vegna þess að í máli, sem í raun snýst um hvort yfir höfuð sé rétt að veita þeim sem hafa framið brot af þessu tagi uppreist æru verður aðalatriðið það hverjir skrifuðu bréf til að lýsa hegðun brotamannanna eftir að þeir höfðu afplánað dóm sinn. Það er í sjálfu sér aukaatriði í málinu, en verður að aðalatriði fyrst og fremst vegna þess að ráðuneytið reynir að komast hjá því að upplýsa um hverjir höfðu skrifað þessi bréf. Hefði það strax verið gert hefðu bréfaskriftirnar eflaust aldrei orðið að aðalatriði málsins.
Það er ekki hægt að áfellast dómsmálaráðherra fyrir að upplýsa forsætisráðherra um þetta tiltæki föður hans. Það er þvert á móti mjög skiljanlegt að hún skuli hafa gert það enda hefur hún án vafa haft áhyggjur af mögulegum afleiðingum þess og viljað gefa Bjarna kost á að bregðast við.
Það er hins vegar erfiðara að skilja hvers vegna Bjarni gekk ekki einfaldlega strax í það að fá samþykki föður síns til að upplýsa sjálfur um aðkomu hans að þessu máli strax og hann frétti af henni. Góður stjórnmálamaður verður að vera hæfilega "paranoid" og reikna frekar með því að upp komist um svona mál en að þau liggi í þagnargildi.
Það að sprengja stjórnina með þeim hætti sem gert var vegna þessa máls er hins vegar bara popúlismi því miður. Ég hugsa að flestir sjái það og afraksturinn verði því rýr fyrir BF, nema þá helst að viss flokksformaður losnar úr ráðherraembætti sem ekki hefur aflað honum mikilla vinsælda.
Þorsteinn Siglaugsson, 15.9.2017 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.