Skilaboð til ríkisstjórnar og Alþingis - þið eruð ónýtir.

Hún seg­ir að fólk hafi fengið nóg af því að geta ekki haft áhrif á sam­fé­lagið eft­ir að þing­menn hafa tekið sæti á þingi. „Al­mennt séð hef­ur fólk bara fengið nóg á að geta ekk­ert gert þegar fólk lýg­ur sig inn á þing og vill að það sé hlustað á það. Ég skynja það þegar ég fylg­ist með því sem fólk er að segja, fólk vill gjör­breyt­ingu á sam­fé­lag­inu, að kerfið verði skil­virk­ara og að grunnstoðirn­ar séu lagaðar og að við losn­um við spill­ing­una. Að við fáum þetta nýja Ísland sem var svo mikið ákall eft­ir í kjöl­far hruns­ins.“

__________

Kjósendur á Íslandi eru búnir að fá nóg.

Þeir eru tilbúnir að segjast ætla að kjósa flokk sem hefur hvorki sýnt frambjóðendur eða stefnumál nema að litlu leiti.

Gömlu flokkarnir og meira að segja þeir nýju fá gula og rauða spjaldið.

Það er ekki hægt annað en skilja þessi sjónarmið eftir að hafa horft og hlustað á Alþingi og ríkisstjórn síðustu mánuði.

Þetta er hreinn skrípaleikur sem kjósendur horfa á alla daga og landið er stjórnlaust.

Ríkisstjórnin vinnur fyrir fjármagnseigundur og hina ríku, vinnubrögðin fyrir neðan allar hellur og stjórnsýslan ónýt.

Verkstjórnin í molum og stjórnarandstaðan virkar eins og leiðilegi strákurinn í hverfinu, nöldrandi og þreytandi.

Þriðjungur landsmanna er tilbúinn að kjósa Pírata og líklega myndu gera það þó Andrés önd, Gosi og Mjallvít væru í efstu sætum á framboðslistum.

Traust til hefbundinna flokka og stjórmálamanna er horfið.

Nú hafa " gömlu " stjórnmálaöflin 16-23 mánuði til sýna kjósendum að þeir eru ekki jafn ónýtir og sýnist.


mbl.is „Hverjum getum við treyst?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 818222

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband