Ónýtir stjórnarþingmenn í NA kjördæmi ?

Fjör á flugvellinum-8388Ekki er gert ráð fyrir nýju flughlaði á Akureyrarflugvelli í samgönguáætlun til ársins 2018 sem Ólöf Nordal, innanríkisráðherra hefur lagt fyrir þingið. Eru þetta nokkur tíðindi þar sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar þingsins sem og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra sögðu á síðasta ári mikilvægt að ljúka við gerð flughlaðsins sem fyrst.

_______________

Það er ljóst að stjórnarþingmenn í NA kjördæmi hafa engan slagkraft.

Forsætisráðherra Sigmundur Davíð, heilbrigðisráðherra Kristján Þór, og formaður samgöngunefndar Höskuldur Þórhallsson, hafa greinilega engan slagkraft innan stjórnarflokkanna.

Allir hafa þeir lýst því sem forgangsmáli að fá fjármuni í nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli en árangur þeirra er enginn.

Reynt var að ná í Höskuld formann samgöngunefndar, en undarlegt, það tókst ekki. Líklega langar hann ekkert að ræða þessa forgangsröðun nefndarinnar.

En sú staðreynd blasir við öllum, stjórnarþingmenn NA kjördæmis hafa ekki slagkraft innan stjórnarflokkanna til að mjaka þessu forgangsmáli áfram.

Það mun því ekkert gerast í flugvallarmálum á Akureyri meðan þessir flokkar eru við völd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þið getið ekki fengið allt Jón. Þið völduð Vaðlaheiðargöng og sitjið uppi með það.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.6.2015 kl. 10:55

2 identicon

Dæmigert að í staðinn fyrir nauðsynlegar endurbætur á Akureyrarflugvelli geri framsóknarmafían plön um að gera sjúkraflugbrautina á Þjófakróki að millilandaflugvelli. Þar eru nákvæmlega engar, segi og skrifa ENGAR forsendur fyrir alvöru flugvelli, hvorki landfræðilegar né samgöngulegar forsendur, ekki mannabyggð og ekki til neinn infrastrúktúr til að taka við þvílíku verkefni. Skagafjörður er ekki ferðamannasvæði og verður aldrei og því er ekki grundvöllur fyrir neinu á borð við alvöru hótel, sem þyrfti að vera til staðar við millilandavöll/varavöll.

Móri (IP-tala skráð) 2.6.2015 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 818129

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband