Standa og falla með láglaunastefnunni.

„Við lét­um bóka það hjá Rík­is­sátta­semj­ara fyr­ir hönd VR og Lands­sam­bands ís­lenskra versl­un­ar­manna að við lít­um svo á að þess­ar viðræður séu ár­ang­urs­laus­ar,“ seg­ir Ólafía B. Rafns­dótt­ir, formaður VR, í sam­tali við mbl.is en viðræðum var slitið í dag í húsa­kynn­um embætt­is­ins. Hún seg­ir aðspurð mikið þurfa að koma til svo hægt verði að taka upp viðræður að nýju. Slit viðræðnanna þýði að lík­ur á verk­falli í lok maí hafi auk­ist mjög.

_______________

Það stefnir í óefni á Íslandi næstu vikur.

Tugir þúsunda launamanna eru á leið í verkfall Þau munu hefjast í lok þessarar viku hjá Starfsgreinasambandinu, BHM er í verkfalli að stórum hluta og nú hafa Flóabandalagið og VR bæst í þann stóra hóp sem slitið hefur viðræðum.

Mörg iðnaðarmannafélög eru í sömu stöðu.

Ef ekkert gerst munu flestar atvinnugreinar stöðvast og ferðamannabransinn mun hrynja.

Vafalaust fara að dynja á afbókanir í þúsundatali, ferðamenn mæta ekki til landa þar sem verkföll eru yfirvofandi.

SA haggast ekki frá 3,8% yfirlýsingum og ríkisstjórnin segist kannski koma að með innlegg ef þeim markmiðum verði haldið.

En staðan er einfaldlega sú að samninganefndir verkalýðsfélaganna hafa ekki nein umboð til að slá af þeim kröfugerðum sem fyrir liggja.

Staðreyndin er þar af leiðandi sú, að SA ætlar að standa og falla með láglaunastefnunni og verkalýðsfélögin ætla ekki að bjóða félögum sínum í annað sinn á rúmu ári, að axla einir ábyrgð á stöðugleikanum.

Sá pakki er búinn m.a. vegna vanefnda ríkisvaldsins vegna síðasta samnings.

Traustið hvarf milli stjórnvalda og launamanna þá.

Síðan hafa stjórnvöld samið við hálaunastéttir um miklu meiri hækkanir en nú eru í boði.  

Slíkt gengur auðvitað ekki.

Umræðan síðustu daga, sérstaklega hjá stjórnvöldum að verkföll séu af hinu illa og það læðist sá grunur að ýmsum að ríkisstjórnin hyggist setja lög á verkföll.

Hvaða afleiðingar slíkt hefði er ekki gott að segja fyrir.

Allavegana er nokkuð ljóst að gríðarlegt uppnám yrði í þjóðfélaginu og ef til vill gæti það leitt til þess að núverandi stjórnarflokkar yrðu bornir út úr stjórnarráðinu á svipaðan hátt og gerðist 2008.

En hvað öllu líður, það stefnir í mikil átök og uppnám á vinnumarkaði.

Sérkennilegt svona í kjölfar þess að fjölmiðlar upplýstu okkur í gær um að við værum næst-hamingjusamasta þjóð í heimi.

 

 


mbl.is Viðræðum VR og SA slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Jón Ingi, Það er vitað að ef gengið verður að kröfum verkalýðsfélagana, þá mun það skapa óðaverðbólgu. Árið sem var að líða hefur sýnt það og sannað vandi íslendinga varðandi krónuna er ekki tilkominn vegna gjaldmiðilsins heldur vegna ASÍ og víxlhækkana launa og verðlags.

Annars þykir mér það merkilegt að vita hvað framkvæmdastjóri samfylkingarinnar og varaþingmaður hennar er að gera innan BHM sem formaður. Er það ekki skilgreiningin á spillingu

Brynjar Þór Guðmundsson, 28.4.2015 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 818074

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband