Stofnanir þjóðarinnar að liðast í sundur. Stjórnmálamenn ráða ekki við vandann.

Erfið fjárhagsstaða Ríkisútvarpsins varð til þess að ekki náðist greiða 190 milljón króna afborgun af skuldabréfi sem var á gjalddaga þann 1. október. Niðurskurður síðasta árs nægði ekki til að ná jafnvægi í rekstrinum. 

________________________

Stofnanir þjóðarinnar eru að liðast í sundur undir stjórn óhæfra stjórnmálamanna.

  • RÚV er í reynd gjaldþrota.
  • Landhelgisgæsla getur ekki rekið búnað sinn og leigir út helstu tæki til að eiga fyrir salti í grautinn.
  • Landspítalinn er í reynd lítt starfhæfur og ekki tekið á þeim vanda.
  • Löggæslan er í fjársvelti.
  • Sérstakur saksóknari skorinn niður í ekki neitt. ( hverju sem það á nú að þjóna)
  • Vegagerðin getur ekki viðhaldið vegakerfinu vegna ónógra fjárveitinga. 
  • Framhaldskólanir eru reknir á sársaukamörkum og verða að skera niður. 
  • Háskólasamfélagið ískrar vegna ónógra fjárveitinga. 
  • Heilbrigðiskerfið er að liðast í sundur.
  • Sveitarfélögin eru flest í miklu vanda og ráða mörg hver illa við lögbundnar skyldur sínar. 

 

Frami fyrir þessum vanda sjáum við síðan stjórnmálamenn sem skera niður tekjumöguleika ríkisins með lækkun skatta og gjalda á stóreignafólk og stórútgerðir.

Stjórnmálamenn eins og fjármálaráðherra, forsætisráðherra, formaður og varaformaður fjárveitinganefndar eru síðan í forgrunni þessa vanda.

Það fer um mann hrollur þegar maður sér vanhæfi þeirra til að leysa nokkurt vandamál.

Það er óhugsandi að nokkur þjóð setti jafn óhæfan hóp í að bregast við og leysa svona bráðan vanda. 

Ekki undarlegt að Geir Haarde ákallaði Guð á biblíusamkomunni um helgina. 

 

 


mbl.is RÚV í greiðsluvanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Stofnun sem lýgur til nafns á hverjum einasta degi og er gjaldþrota vegna þess að starfsmennirnir sem eru allir upp til hópa Samfó-vinstri rugludallar, og er í raun gjaldþrota vegna þess að ekki er hægt að losna við ónytungana sem þar starfa,slíka stofnun á að leggja niður hið snarasta eða selja hana ef einhver vill kaupa.

Sigurgeir Jónsson, 2.10.2014 kl. 21:19

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

"rúvvið.

Sigurgeir Jónsson, 2.10.2014 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 818117

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband