Akureyri. Nýr meirihluti - forysta í umhverfismálum.

 

Nýr meirihluti hefur tekið til starfa á Akureyri. Meirihluti Framsóknar, Samfylkingar og L-lista hefur sett fram metnaðarfulla málefnaskrá sem lofar góðu fyrir komandi kjörtímabil.

Sérstaka athygli mína þessi metnaðarfullu áform í umhverfismálum.

Skipulag, umhverfi og samgöngur

— Taka forystu meðal íslenskra sveitarfélaga í umhverfismálum

— Setja okkur mælanleg markmið í umhverfismálum

 

Það eru stór orð og gleðileg að setja sér markmið um að taka forystu í umhverfismálum. Það er skoðun mín að við höfum alla burði til að standa við þessa stefnumörkun á næstu fjórum árum og við eigum okkur mál sem við getum sett í forgang til að  ná þessum markmiðum.

 

Ég hef nokkuð fjallað um virkun á Glerárdal og þau áform að taka meginhluta vatns úr Gleránni og tæma náttúrvættið Glerárgil. Áform að því tagi geta ekki átt heima í sveitarfélagi sem ætlar sér forustu í þessum málaflokki og nú er tækifæri að breyta þessum áformum og falla frá virkjun á dalnum. Allir sem kynnt hafa sér þessi mál vita að sú raforka sem fæst er sáralítil og breytir engu hvað varðar aukaafl fyrir Akureyri. Gleráin er nánast vatnslaus á þeim tíma sem mest þarf á raforku að halda og virkun hennar skilar því ekki þeim árangri sem Fallorka hefur haldið fram. Nánast má kalla þetta gæluverkefni sem ekki á rétt á sér þegar vegnir eru saman meiri eða minni hagsmunir.

 

Nú hefur ný bæjarstjórn tækifæri til að sýna metnað sinn í verki og hætta við þessi áform.

 

Í framhaldi af því gæti farið fram metnaðarfull uppbygging nýs fólkvangs – án virkjunar.

 

Það væri glæsilegt upphaf yfirlýsingar um „ forysta í umhverfismálum“ sem er einn af þeim gleðilegu punktum sem lesa má í samstarfsyfirlýsingu nýja meirihlutans á Akureyri.

 

Jón Ingi Cæsarsson

( Akureyri vikublað 3.7.2014 ) 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 818083

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband