Ríkisstjórn á fallanda fæti.

37% Íslendinga segjast nú styðja ríkisstjórnina, samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Capacent Gallup, sem er fimm prósentustigum færri en í síðustu könnun. Þetta kemur fram í frétt á vef Ríkisútvarpsins.

_______________

Marktækar breytingar á milli kannana Gallup eru ekki margar frá mars til apríl.

Þó má sjá að ríkisstjórnin er að tapa og tapar fylgi hraðar en ríkisstjórn síðasta kjörtímabils samkvæmt stjórnmálarýni.

Framsóknarflokkurinn er kominn í 13% rúmlega og fellur enn.

Það er að verða heldur lítil innstæða fyrir þeim 19 þingmönnum, sem þar sitja við borð.

Ástæðurnar eru svo augljósar

Svikin kosningaloforð, verkleysi, furðulegur málflutningur flestra ráðherra, virðingarleysi fyrir lýðræðinu, dekur við auðmenn og alvarlegur skortur á framtíðarsýn.

Sjálfstæðisflokkurinn er fastur í fjórðungsfylgi, sem er það fylgi sem hann hefur þegar ekkert er eftir nema kjarnafylgið, þeir sem aldrei fara neitt, nema kannski ef Sjálfstæðismenn fá annan hægri flokk, hver veit.

Jafnaðarmenn eru klofnir og tveir flokkar með svipað fylgi eru til á þeim vængnum, samtals með 34 % fylgi.

VG og Píratar með sín 10 % tæplega - rúmlega.

 


mbl.is Dregur úr stuðningi við ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 818176

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband