Hvernig á að drepa stjórnmálaflokk ?

„Ég skil varla hvað hann var að gera þarna,“ segir Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gló, um ræðu Sigurðar Inga Jóhannssonar landbúnaðarráðherra, sem hélt erindi á morgunverðarfundi Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins í síðustu viku. Þar var rætt um lífræna framleiðslu hér á landi og möguleika íslenskra afurða í Bandaríkjunum.

Skemmst er frá því að segja að hann […] bullaði bara eitthvað og sagði sögu af bóndakonu sem hefði boðið fólki í mat og allt hráefnið hefði verið ræktað á staðnum og talaði m.a. mikið um (villta) sveppi sem hún hefði fengið úr garðinum hjá sér og notað í máltíðina. Sögunni og erindinu lauk með þeim orðum að hann efaðist um að slíkur sjálfsþurftarbúskapur gæti fætt þjóðina.“
 

( visir.is. )

http://visir.is/undrandi-a-raedu-um-lifraenan-idnad/article/2013709279941

_________________________

Landbúnarráðherra, umhverfisráðherra, sjávarútvegsráðherra, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins, t.d. Vigdís Hauksdóttir og Frosti Sigurjónsson hafa verið með þjóðina á námskeiði í hvernig drepa skal stjórnmálaflokk.

Landbúnaðar-umhverfisráðherra hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum, fer um víðan völl og gengur fram af fólki. ( bullar eins og segir í greininni hér að ofan)

Forsætisráðherra verður ítrekað að aðhlátursefni í útlöndum og orðræða hans löngum stundum óskiljanleg og ruglingsleg.

Utanríkisráðherra og Vigdís eru sérstakur kapítuli sem þarf ekki að ræða sérstaklega.

Frosti mætir reglulega í fjölmiðla og þarf síðan að mæta aftur og leiðrétta og biðjast afsökunar á sjálfum sér.

Allt þetta er sýnikennsla í hvernig drepa skal stjórnmálaflokk, enda hefur hann þegar tapað helmingi þess fylgis sem hann hæst mældist, og er það afrek útaf fyrir sig.

Kannski verður að skoða þetta  í ljósi þess að hann hefur nákvæmlega ekki gert nokkurn skapaðan hlut enn sem komið er þrátt fyrir stór orð þar um.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 818143

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband