Ruglið endalausa.

Formaður höfuðstólshópsins er Sigurður Hannesson, einn nánasti ráðgjafi Sigmundar Davíðs í efnahagsmálum, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri eignastýringar MP banka.  Í verðtryggingarhópnum sitja Valdimar Árnason, sjóðsstjóri hjá Gamma – rekstrarfélagi verðbréfasjóða, og Iða Brá Benediktsdóttir, forstöðumaður einkabankaþjónustu Arion banka.

Í nýjasta tölublaði Kjarnans segir að margir leikendur á markaði og starfsmenn annarra fjármálafyrirtækja séu mjög hissa, og jafnvel reiðir, yfir þessari stöðu. Þeim þyki augljóst að fjárfestar muni ekki sitja við sama borð né hafa sama aðgengi að upplýsingum þegar fulltrúar ákveðinna fjármálafyrirtækja sitja í í hópnum. Þeir fulltrúar munu hafa innherjaupplýsingar er varða skuldabréfamarkað.

( eyjan.is )

Það er nokkuð sama hvað forsætisráðherra tekur sér fyrir hendur, það er klúður.

Þegar hann valdi sérfræðingahópinn þá gætti hann þess að velja góðkunningja sína og samstarfsmenn að innstu koppum.

Ætti ekki að koma á óvart, Framsóknarflokkurinn í hnotskurn.

Með þessu hefur hann ofboðið fjölda manna sem telja að þeir sitji ekki við sama borð og vinastofnanir Framsóknar.

En mergurinn málsins er að ruglið ætlar engan enda að taka, flest það sem forsætisráðherra tekur sér fyrir hendur er klúður ef það er þá gert.

Skeflileg ár framundan, það er ef samstarfsflokkurinn hefur þolinmæði fyrir svona verklag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818210

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband