Óábyrgur stjórnmálamaður.

 

"Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, stendur fastur á fyrri ummælum sínum þess efnis að ræddar hafi verið skattahækkanir á matvælum innan herbúða ríkisstjórnarinnar.

Aðspurður hver heimildarmaður hans sé segist Sigmundur Davíð ekki treysta sér til að gefa það upp."

Þessi ummæli sanna það að SDG er óábyrgur stjórnmálamaður, mætir í fjölmiðla aftur og aftur með allskonar fullyrðingar sem síðan eru alsendis marklausar og innistæðulausar.

Þessar staðreyndir sýna það svart á hvítu hvernig stjórnmálamaður SDG er og auk þess neitar hann að gefa upp heimildarmenn.

Það segir okkur að Gróa á Leiti er meðreiðarsveinn formannsins og bara gott að vita það .... staðfest og kvitt. 


mbl.is Stendur við fyrri ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Það var vissulega óábyrgt hjá Sigmundi Davíð á sínum tíma að veita minnihlutastjórnni skjól - hann mun ekki gera það aftur.

Svo er spurning hvað Sigmunur Ernir ætlar að vera með ríkisstjórnina lengi á skilorði.

Óðinn Þórisson, 10.8.2011 kl. 15:41

2 identicon

Þú ættir nú að fylgjast betur með Jón Ingi. Bæði Steingrímur og Jóhanna eru búin að staðfesta í fjölmiðlum að virðisaukaskattahækkanir hafi verið ræddar og breytingar á virðisaukaskattkerfinu í anda AGS tillagnanna hafi ekki verið slegnar alveg út af borðinu. Þuríður Backman er auk þess búin að segja í fjölmiðlum að það það þurfi að

"endurskoða virðisaukaskattslöggjöfina hjá okkur og taka meira mið af því sem er í nágrannalöndum okkar og Norðurlöndunum og með hliðsjón af þeim atriðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og fleiri hafa bent okkur á að þurfi að breyta".

Þetta er einfaldlega nákvæmlega það sem Sigmundur Davíð var að benda á.

Svör stjórnarliða eru auk þess öll á þann veg að þetta sé ekki áformað í þessum fjárlögum, en öll passa þau sig á að halda möguleikanum inni í myndinni, þ.e. að virðisaukaskattkerfinu þurfi nú líklega að breyta og þá skv. AGS tillögunum, það hafi verið rætt og sé alveg inni í myndinni í framtíðinni.

Það er vissulega auðveldara fyrir þig að garga um að þeir sem þú ert ekki sammála séu óábyrgir heldur en að horfast í augu við þá staðreynd að einhver í stjórnarliðinu sagði Sigmundi frá því sem hann átti að þegja yfir.

Jóhannes Þór (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 818138

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband