21.4.2011 | 12:12
Kjánarnir við Austurvöll.
Þetta kemur í sjálfu sér ekkert á óvart. Þetta hefur verið notað sem grýla í öllum þessum Icesave-samningum af hálfu íslenskra stjórnvalda og annarra og hluti af hræðsluáróðrinum, segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um ákvörðun matsfyrirtækisins Moody's.
Það hlakkar í Þór Saari við það eitt að matsfyrirtæki heldur horfum óbreytum fyrir Ísland. Hann ákveður að horfa framhjá því að horfur þar eru í næsta flokki ofan við ruslflokk og horfur neikvæðar.
Eitt er alveg á tæru. Ef þingmenn fara ekki að tala af alvöru og skynsemi þá verðum við áfram í nágrenni við ruslflokk og þó Þór Saari telji það fínt þá er ég ekki sammála honum.
Icesaveniðurstaðan tryggði það að við munum vera áfram við botninn og það verður ströggl og vesen að koma í veg fyrir það að við dettum ekki einu þrepi neðar. Að það gerðist ekki núna var vegna þess að lögð var mikil vinna í að koma í veg fyrir það og ekkert í hendi að það gerist ekki næst.
Maður fær bjánahroll að hlusta á þvaðrið í þingmanninum Þór Saari sem virðist harla kátur með þá stöðu sem Ísland er í.
Næsta þrep fyrir ofan rusl og horfur neikvæðar duga hinum metnaðarlausa og óábyrga þingmanni Þór Saari.
Þykjast hafa sigrað eigin grýlu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert veruleikafirtur,,,,ströglar en þó ekkert af þínum hrakspám hafi gengið eftir. Næstum búin að steypa þjóðinni í glötun með já áróðrinum.
Óskar (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 12:28
Já, Jón Ingi, nú er íhaldsframsóknarkratían, einkum Samfylkingin, fallin niður í það hólf ruslsflokksins sem geymir spilliefni og bráðdrepandi ýldu. Næsta skerf þjóðarinnarer að sturta óþrifnaðinum niður ásamt ESB umsókinni á eftir Icesavesamningnum.
Jóhannes Ragnarsson, 21.4.2011 kl. 12:33
Vinhanar ríkisstjórnarinnar hafa verið blásnir um koll. Það vita allir nema meðvirkir kratar og kommar!!!
Hafsteinn Björnsson, 21.4.2011 kl. 12:43
"Næsta þrep fyrir ofan rusl og horfur neikvæðar duga hinum metnaðarlausa og óábyrga þingmanni Þór Saari."
Skondið þú minnist á óábyrgan þinigmann....svona í ljósi þess að sitjandi ríkisstjórn neitar að taka ábyrgð á þeirri staðreynd að Icesave lögunum var hafnað tvívegis af þjóðinni.
Blindur leiðir blindan
Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 21.4.2011 kl. 12:56
Það er a.m.k öllum ljóst að Samfylkingn er komin í ruslflokk
Óðinn Þórisson, 21.4.2011 kl. 12:57
Jón Ingi. Af hverju lætur þú aðra segja þér að þú sért í ruslflokki? Af hverju ertu ekki þú sjálfur og trúir á þína innstu sannfæringu um að þú sért ekki rusl, sem er raunverulega staðreyndin?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.4.2011 kl. 13:36
Jón Ingi er EKKI rusl, en hann fær bjánahroll af minnsta tilefni.
Jón Valur Jensson, 21.4.2011 kl. 13:41
Þór Saari og Höskuldur Þórhallsson hafa rétt fyrir sér. Ríkisstjórnin blekkir engan nema sig sjálfa og handfylli meðvirkra einfeldninga.
Libertad, 21.4.2011 kl. 13:42
Þessi fyrsta "tæra" vinstri stjórn verður sífellt þreyttari og þreyttari brandari. Hún heldur að hún geti stjórnað landinu með orðum hvort sem það er veruleikafirrtur fagurgali eða duldar, innantómar hótanir og hræðsluáróður. Ef þu vilt sjá alvöru metnaðarlaus og óábyrg vinnubrögð, jón Ingi, þá legg ég til að þú skoðir sögu Icesave málsins og farir yfir vinnubrögð Masfylkingarinnar og VG á þingi í því máli.
Pétur Harðarson, 21.4.2011 kl. 14:21
Jæja, ég hlakka til þess að sjá allar nýfjárfestingarnar og vaxtakjörin á endurfjármögnuðum lánum ríkisins og sveitarfélaga.
Ég skil samt ekki hvernig Seðlabankinn gat komið með verri hagvaxtarspá eftir að Icesave var hafnað. Á það ekki akkúrat að vera öfugt?
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 05:11
Gaman að sjá ykkur öll hér á síðunum eftir eitt og hálft ár ... Icesave er ákveðið pea-nut, en sorrí, kemur ekki að því að við borgum tvöfalt, eða fáum helmingi minna út úr landsbankanum hér í uppbyggingu, og skuldaeyðingu.
Jonsi (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 09:22
Jón Ingi, þú skrifar að þú sért jafnaðarmaður. Hvernig geturðu þá stutt þessa ríkisstjórn, sem ekkert færir þjóðinni nema óréttlæti, ójöfnuð og spillingu?
Libertad, 22.4.2011 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.