Tilraun til valdaráns.

 

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með þá stöðu sem upp er komin í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Hefur samninganefnd ASÍ ákveðið að hætta öllum þreifingum við SA um gerð kjarasamnings. ASÍ segir að það muni ekki láta atvinnurekendur taka viðræðurnar í gíslingu til að verja sérhagsmuni útgerðamanna.

Þessi nálgun SA að kjarasamningum og þvingunarskilyrði þeirra í sjávarútvegsmálum er ekkert annað en tilraun til valdaráns í ákveðnum málaflokki og kannski síðar í fleiri málaflokkum.

Að neita að semja við tugi þúsunda launamanna nema ríkisstjórnin hlýði þeim í kvóta og sjávarútvegsmálum er dæmalaust og ég veit ekki í hvaða skógarferð þessi samtök eru.

Ég hef áður sagt að með þessu neyða þeir verkalýðshreyfinguna til aðgerða og ríkisstjórn og Alþingi geta alls ekki samþykkt að þeim séu sett skilyrði við stjórn landsins. Slíkt er ekkert annað en tilraun til valdaráns og aðför að lýðræðinu. En sennilega átta Vilhjálmur og co sig ekki á þeirri uggvænlegu staðreynd.

Eigum við kannski von á hótunum í fleiri málaflokkum í framhaldinu. Við semjum ekki við launafólk nema .....nema .....nema.... ríkisstjórnin hlýði okkur.

Fjárlagafrumvarpið...ESB... skattamál fyrirtækja... skipan ráðuneyta..  Eigum við von á að SA taki næst til við að nota kjarasamninga til að stjórna þeim málaflokkum í gegnum hótanir.

Ég hef aldrei orðið vitni að sambærulegu dómgreindarleysi í upphafi kjarasamningaferlis sem þarf að nálgast með skynsemi og varúð.... líklega eru þeir ekki með réttu mennina sem ráðgjafa.


mbl.is Hætta öllum þreifingum við SA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818152

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband