Akureyri fram veginn.

 

Skrifað var í dag  undir rammasamning milli Strokks Energy e.hf. og Akureyrarbæjar um að komið verði á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri. Koltrefjar eru notaðar sem styrkingarefni í iðnframleiðslu og leysa af hólmi ýmis þekkt smíðaefni svo sem ál, timbur og stál, sérstaklega í iðngreinum þar sem léttleiki og styrkur eru höfð að leiðarljósi.

Það hefur tekist hjá bæjaryfirvöldum að halda á málum af skynsemi og festu. Rekstur bæjarins er í jafnvægi þrátt fyrir kreppu og tekist hefur að halda fjármálum í góðum gír.

Meðan kreppan lék ýmsa grátt hefur uppbygging iðnaðar haldið áfram á Akureyri. Fyrsti áfangi aflþynnuverksmiðjunnar er farin að mala gull.

Nú gæti verið framundan enn frekari uppbygging í léttari, vistvænni iðnaði hér og bæjaryfirvöldum og atvinnuþróunarfélaginu hefur tekst afar vel upp.

Að velta fyrir sér nýtingu á gasi úr sorphaugunum er síðan enn einn flötur á þessu máli og það er hluti af þeirri nýju hugsun sem einkennt hefur umhverfismálin á Akureyri síðasta kjörtímabil.

Jarðgerð, úrgangsmálin endurskipulögð frá grunni og enn frekari nýting og endurvinnsla.

Svona á að hugsa og vinna... og vonandi fáum við fólk sem svona hugsar að stjórnartaumum næsta kjörtímabil.

 


mbl.is Rammasamningur um koltrefjaverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 818141

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband