20.4.2017 | 14:44
Ríkisstjórnin fær falleinkunn.
(ruv.is)
Ríkisstjórn Íslands fær falleinkunn hjá sérfræðingum sínum.
Að auki segir sérfræðingahópurinn að útreikningar ráðsins bendi til þess að aðhald í ríkisfjármálum minnki á næstu árum. Þannig virðist sem stjórnvöld séu að stíga lausar á bensíngjöfina þegar þau ættu að vera að bremsa, eins og sérfræðingarnir orða það, og að sú slökun í aðhaldi ríkisfjármála sem hafi átt sér stað á undanförnum árum muni halda áfram.
(ruv.is)
Samkvæmt þessu virðist hægri íhaldsstjórnin ekki hafa neina stjórn á ríkisfjármálum og undir þeirra stjórn viðgangist lausung og agaleysi.
Áhyggjuefni fyrir land og þjóð.
Væntanlega heldur þessi tæpi meirihluti varla nema nokkra mánuði, í mesta lagi fram á næsta haust, kannski næsta vor.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2017 | 13:38
Hörmungarstarfsemi Strætó, móðgun við farþega.
Fór með farþega í morgun í Strætó.
Brottför 8.21.
Á bílastæði við Hof og í skjóli við húsveggi þar hímdu farþegar sem voru að bíða.
Veður. Slydda, norðan fræsingur, hiti ein gráða.
Tvær rútur voru á fara um þetta bil, mættu báðar á staðinn eina mínútu í auglýstan brottfarartíma.
Sem betur fer var um helmingur þeirra sem voru að fara í bílum og gátu beðið inni í velgjunni.
Þeir sem ekki höfðu þann möguleika, greinilega erlendir ferðamenn að hluta, skulfu úti í slyddunni.
Auðvitað er þetta ekki boðleg þjónusta, ekkert skýli er á staðnum frá Strætó sem dæmi.
( Myndin er ekki tekin í morgun en sýnir vel hvernig þetta er sveit sett ofan í umferðinni um Strandgötu )
Stendur virkilega ekki til að bæta úr og er þetta sómasamlega ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2017 | 15:56
Svikaslóð ríkisstjórnarflokkanna.
____________________
Það er uppnám í þjóðfélaginu.
Hvert sem litið er blasir við svikaslóð ríkisstjórnarflokkanna.
Heilbrigðismálin eru í uppnámi, alvarleg svik hafa þar átt sér stað.
Grein Guðjóns Brjánssonar um vanefndir í heilbrigðsmálunum.
(Gunnar Hrafn Jónsson)
Ekki alveg viss um að heilbrigðisráðherrann sofi vel.
Stjórn Félags framhaldsskólanna ályktar hér.
Rektor Háskóla Íslands tjáði sig í gær.
Aðför að rannsóknarháskólanum
Hvert sem litið er blasa við vanefndir og svik stjórnmálamannana sem lofuðu feitt fyrir kosningar og nú birtast landsmönnum hvað er að marka þá.
Óvenju miklar blekkingar og svik blasa við.
Þessi ríkisstjórn er afar hættuleg, þessir þrír flokkar lugu sig til valda og tímabært að þeir fari frá og láti öðrum eftir að takast á við landsstjórnina.
Sennilega þarf að kjósa aftur til að fá niðurstöðu sem gæti virkað.
![]() |
Ríkið svíkur loforð um framhaldsskólana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.3.2017 | 17:15
Stórsvindlarar með pólitískan velvilja og fyrirgreiðslu.
Það lá rosalega mikið á að koma Búnaðarbanka og Landsbanka í hendur pólitískra vildarvina í byrjun aldarinnar.
Skollaeyrum var skellt við viðvörunum um að allt væri kannski ekki eins og sýndist á þeim tíma.
Davíð Oddsson og félagar höfðu þegar veikt öll eftirlitskerfi, ekkert átti að þvælast fyrir.
Þeir stórsvindlarar og svikahrappar sem nú eru opinberaðir enn á nú voru sérstakir gæludrengir stjórnmálamannana í þá verandi stjórnarflokkum.
Þeir átu úr lófum fjármálamannanna og þeir fengu allt sem þeir vildu á silfurfati.
Þeir gáfu þeim skotleyfi á eignir þjóðarinnar sem situr eftir svikin og sár.
Auðvitað bera þeir líka ábyrgð á svikunum, hvort sem þeir vissu eitthvað eða ekki.
Kannski er jafn ámælisvert að vita ekkert í sinn haus, það á bæði við um stjórnmálamennina og þá sem eftir standa af S hópnum og vissu ekkert. Trúi því hver sem vill, þannig er staðan núna.
Þá er það Landsbankinn, ekki var ormagryfjan sem þar opinberaðist síðar minni eða huggulegri.
Hvernig væri að kryfja þá sölu til mergjar, þó ekki af HHG.
![]() |
Kanna verklag ráðherra vegna sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2017 | 17:52
Þingmenn í þjónustu útgerðanna ?
_____________
Maður verður orðlaus.
Enn leggja Sjálfstæðisþingmenn til lækkun veiðigjalda og þar með tekjur þjóðarinnar af auðlindinni.
Hversu lágt geta þingmenn Sjálfstæðisflokksins lagst í þjónkun sinni við útgerðina.
Þeim er slétt sama um tekjur ríkissjóðs, þeim finnst þeim tekjum betur borgið í vasa auðmannanna.
Sorglegt lið.
Ekki undarlegt að sameiginlegar eignir þjóðarinnar séu nánast gjaldþrota, Sjálfstæðisflokkurinn beinir tekum í síkauknum mæli til þeirra ríku og eykur misskiptingu í þjóðfélaginu.
Það er þeirra stefna og 30% kjósenda virðast skrifa upp á þá stefnu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.3.2017 | 15:02
Flokkur sem hvarf á 80 dögum.
______________
Frægt verk og bíómynd hét " Umhverfis jörðina á 80 dögum "
Nú væri hægt að skrifa nýtt verk sem bæri titilinn " Flokkurinn sem hvarf á 80 dögum "
Viðreisn fékk 10.5% í kosningum, mælist nú með 3 %. Það er nokkuð mikið fall á 80 dögum, slatti á dag.
Þingflokksformaðurinn áttar sig greinilega ekki á ástæðum þess.
Flokkurinn var stofnaður til að greina sig frá Sjálfstæðisflokknum og hafði aðrar áherslur.
Niðurstaðan varð, Viðreisn gleypti allar áherslur stóra bróður og kastaði sínum.
Kjósendur á hægri vængnum þurfa ekki tvo flokka sem eru alveg eins, þess vegna fara þeir bara heim í Valhöll eða annað.
Jafnaðarmenn sem kusu Viðreisn af því þeim fannst hann líkjast gamla Alþýðuflokknum eru væntalega að hugsa sinn gang. Varla setja þeir atkvæði sitt aftur á flokk sem er alveg eins og Sjálfstæðisflokkurinn.
Líklega er Viðreisn einnota stjórnmálaafl, ætlað til að halda Sjálfstæðisflokknum við völd, en kjósendur láta varla plata sig tvisvar.
Það segja kannanir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2017 | 15:32
Grútspældur - af hverju ?
__________
Formaður Viðreisnar grútspældur.
Hann greinilega áttar sig ekki á hversu alvarlegt það er fyrir stjórnmálaflokk að selja öll sín helstu stefnumál fyrir ráðherrastóla.
Kjósendur flokksins ætluðust til að hann gerði eitthvað annað.
En Engeyjar-Bensi ákvað að selja sálu flokksins fyrir sæti í stjórn hjá frænda.
Auðvitað fara kjósendur flokksins annað, skárra væri það nú.
Björt framtíð fær sömu útreið og báðir þessir flokkkar eru dottnir af þingi samkvæmt nýjustu könnun Stöðvar 2.
11 þingmenn stjórnarinnar eru þar með farnir af þingi og stjórnin kolfallin, á mettíma.
Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart þó svona mælist, þessir flokkar hafa horfið inn í Sjálfstæðisflokkinn og skera sig að engu frá honum.
Auðvitað fara kjósendur annað sem sviknir eru svona afgerandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2017 | 16:33
Stjórnarliðar og stóru málin.
Stjórnarliðar eru að garfa í stóru málnum.
Sjálfstæðisdrengir og nokkrir aðrir vilja brennivínið í almennar búðir. Afar mikilvægt mál í þeirra augum.
Viðreisarþingmenn vilja önnur sæti, ekki er það nú minna mál og mikilvægt.
Björt framtíð er einhversstaðar, ekki alveg vitað hvar.
En hvernig ætli þetta sé með stóru mál ríkisstjórnarinnar.
Ekkert bólar á þeim og á meðan dunda stjórarþingmenn sér við helstu persónulegu hugðarefni.
Ekki undarlegt að traust á þingi og þingmönnum sé rúmur pilsner í mælingum.
![]() |
Pawel vill nýja sessunauta á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2017 | 18:45
Skítalykt af málinu.
____________
Forsætisráðherra Bjarni Benediktsson fagnar sölu á hlut í Arionbanka til vafasamra fjárfesta.
Einn þeirra sektaður um milljarða vegna mútugreiðslna.
Annar settur í rusflokk daginn eftir kaupin.
Ekki undarlegt að BB fagni, viðskipti í anda þess sem hann þekkir svo vel.
Það er skítalykt af þessu máli og viðskiptamenn bankans virðst vera á því, mikill fjöldi þeirra eru að leita annað með sín viðskipti samkvæmt upplýsingum sem hafa verið að birtast í fjölmiðlum.
Eitt er alveg ljóst, þessi gjörningur er ekki til þess fallinn að auka traust á bönkum í hugum landsmanna en eins og allir vita hefur það haft þessar stofnanir í ruslflokki um árabil.
Sorglegt hvað margt er vafasamt í þessum málaflokki hér á landi.
![]() |
Ég er ekki stolt af þessu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2017 | 13:29
Skilningssljóir þingmenn úti á þekju.
Ef það væri vottur af skynsemi í þeim þingmönnum sem lögðu fram þetta óheillafrumvarp þá mundu þeir draga það til baka.
Nánast allir sem veitt hafa umsögn eru á móti, lýðheilsufrömuðir og heilbrigðisstarfsmenn hafa með rökum sýnt fram á skaðsemi þess að veita auðveldara aðgengi að áfengi.
En sumir berja bara hausnum við steininn og virðast alls ekki skilja málið.
Það er fullkominn sóun á tíma löggjafarsamkundunnar að halda þessu til steitu.
Ef það er ekki hægt að koma vitinu fyrir þessa fáu þingmenn sem lögðu þetta fram væri ráð að setja þetta í atkvæðagreiðslu strax og fella það.
En kannski þurfa ríkisstjórnarflokkarnir á þessu að halda, slík er málafátæktin og verkefnaleysið á þingi þessi misserin.
![]() |
Opin fyrir því að laga frumvarpið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
agny
-
malacai
-
megadora
-
gumson
-
skagstrendingur
-
agustolafur
-
bjarnimax
-
bleikaeldingin
-
bookiceland
-
gattin
-
bibb
-
dofri
-
ragnagrondal
-
fsfi
-
saltogpipar
-
gisliivars
-
gretar-petur
-
lucas
-
mosi
-
gudrunkatrin
-
nelson
-
coke
-
hehau
-
hemba
-
helgivilberg
-
hildajana
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlynurh
-
slubbert
-
minos
-
hordurj
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jakobk
-
leicester
-
rabelai
-
jonhalldor
-
joninaros
-
jonerr
-
jonsnae
-
thjodarskutan
-
kafteinninn
-
ktomm
-
kjarri
-
kjarrip
-
ksk
-
kristjanmoller
-
larahanna
-
lara
-
lillagud
-
magnusmar
-
olafurjonsson
-
skari60
-
pallijoh
-
ljosmyndarinn
-
fjardarheidi
-
safi
-
siggisig
-
stebbifr
-
svavaralfred
-
svenni
-
saemi7
-
saevarh
-
sollikalli
-
valdisa
-
vestfirdir
-
tbs
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 820349
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar