Misskilningur eða einelti ?

Þor­steinn Magnús­son, varaþingaður í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, hef­ur sagt sig úr Fram­sókn­ar­flokkn­um.

Umræðan sem fram­boðið efndi til (fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar í vor) var að mínu mati til­efn­is­laus, meiðandi í garð múslima og til þess fall­in að ýta und­ir for­dóma og mis­mun­un. Þá fær hún að mín­um dómi með engu móti sam­ræmst grund­vall­ar­stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins, enda birt­ust þar viðhorf sem tengj­ast mun frek­ar þjóðern­is­sinnaðri íhalds­stefnu held­ur en frjáls­lyndri miðju­stefnu,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Þor­steini.

____________

Enn einn farinn frá borði hjá Framsókn.

Samkvæmt formanni flokksins er allir, eða næstum allir vondir við Framsóknarflokkinn.

Nú er spurning hvort SDG flokkar þetta undir einelti eða misskilning, það væntalega kemur í ljós í næsta gráttíma formanns Framsóknar. 


mbl.is Hættir í Framsókn vegna moskumáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er greinilega mikill misskilningur hjá frv. varaþingmanni, og greinilegt að hann hefur ekki lesið Stjórnarskrána eða fengið kynningu á henni.

Trúfélög mega ekki samk. Stjórnarskrá kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða alsherjarreglu.

Viðbjóður eins og limlesting unglingsstúlkna,barnagiftingar, þvinguð hjónabönd, heiðursmorð, kúgun kvenna, sjaria-lög sem leifa handarmissir fyrir þjófnað,og fjölkvæni,geta seint talist gott siðferði, og vera innan alsherjarreglu.

Það væri gott ef fyrverandi varaþingmaður byrjaði á því að lesa 63.og65gr. Stjórnarskrárinnar því það tekur ekki mikinn tíma, að kynna sér þessar greinar.

Trúarbrögð sem leifa þennan viðbjóð á að banna á Íslandi.

Halldór Björn (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 17:17

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mikið til í þessu hjá þér Halldór Björn. Það er nefnilega dálítill flóttaþefur af þessu moskumáli. Það er þefur af flótta frá því efni sem raunverulega liggur að baki andstöðunni við þessa moskubyggingu.

Það mun engu breyta þótt öskrað sé um rasisma á hverjum umræðupósti þar sem aðeins ein skoðun er leyfð, ein skoðun viðurkennd.
Það er óttinn við - og andstaðan gegn - innleiðingu þessarar menningar sem veldur andstöðunni. Og það má ekki svo mikið sem reyna að ræða sig til neinnar niðurstöðu. Öll skoðanaskipti eru bannfærð með ofríki og hreinu einelti í garð þeirra sem vilja fá að taka umræðu um þetta efni sem er bæði viðkvæmt og vafalítið rangtúlkað á báða bóga.
Hvenær er t.d. vitnað í rannsóknir félagsvísindalegs toga á aðlögun múslimafjölskyldna að menningu þeirra þjóða á Norðurlöndum sem við þekkjum best til?

Eru allar fréttir af slæmum vandamálum vegna innfluttra múslima þar upplognar eða affluttar? 

Árni Gunnarsson, 17.7.2014 kl. 17:45

3 identicon

Menn eiga ekki að taka í hönd á ókunnugri konu.

Gifta má burt 10 ára stúlkubörn.

Maður má giftast fjórum konum samtímis og af hvaða trúboði sem helst, en kona má ekki giftast nema einum manni og hann VERÐUR að vera múslimi. Lesið koraninn!

Spyjið bara Salmann Tamimi.

100 % brot á stjórnarskránni, þannig að Þorsteinn veður villur og gott fyrir Framsókn að losna við hann.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 17.7.2014 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 818129

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband