Hverskonar fyrirbæri er Sjálfstæðisflokkurinn ?

 

„En það sem er nú komið á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, rímar einkum við þrennt sem ég man eftir: Kaþólsku kirkjuna á hinum svörtustu miðöldum, er hún samdi „Skrá yfir bannaðar bækur“. Í öðru sæti eru bókabrennur Hitlers. Í þriðja sæti kemur svo ritskoðun Sovétsins.“

Þetta segir Þórir Stephensen, fyrrum dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey,

Bragð er af þegar flokksmenn finna.

Það kraumar í Sjálfstæðisflokknum. Eftir að öfgamenn náðu sigri á landfundi hafa frjálslyndari Sjálfstæðismenn keppst við að lýsa yfir óánægju sinni og hneykslan. Sumir þeirra hafa þegar sagt sig úr flokknum.

Það er sannarlega vel hægt að skilja afstöðu þeirra. Flokkssamþykktir á landsfundi vekja um áleitnar spurningar um hvernig flokkur Sjálfstæðisflokkurinn er að verða. Öfgamann hafa náð undirtökunum og hófsamari menn hrekjast burtu.

Hvaða frjálslyndum manni getur verið vært í flokki sem var tilbúinn að festa trúarkreddur í stefnumálum sínum, flokki sem vill loka á eðlilega umræðu í landinu og flokki sem er tilbúinn að hafa það á stefnuskrá sinni að loka á samskipti við okkar helstu viðskiptalönd.

Frjálynt fólk hefur óbeit á þeim kreddum og öfgum sem sjá má í mörgum landsfundarsamþykktum flokksins. Þeirra ein valkostur er að forða sér á hlaupum.

Hver vill láta kenna sig við hægri öfgaflokk sem er tilbúinn að sýna sama andlit og ýktustu hægri menn eiga til í Bandaríkjunum

Að mínu mati enginn og ég trúi ekki að kjósendur séu tilbúnir að færa svona flokki eitthvað vald á Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki ofarlega á óskalista Árna Páls að gerast hækja þeirra, ef þeir ná meirihluta saman, sem er alls ekki víst?

Eftir að hafa svikið í stjórnarskrár málinu er hann líklegur til alls.

Besta leiðin til að koma í veg fyrir það er XL.

Trausti (IP-tala skráð) 9.3.2013 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818113

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband