Eðlilegt og sjálfsagt.

Það er eðlilegt og sjálfsagt að stjórnvöld leiti leiða til að fá til baka eitthvað af því fjármagni sem ævintýramenn hafa haft af Íslendingum.

Flest bendir til að þarna hafi verið á ferðinni ótrúlega ósvífin aðferð til að bjarga Landsbankanum frá gjaldþroti á kostnað erlendra sparifjáreiganda.

En nú verða má rannsökuð í botn og þá kemur í ljós hver ábyrgð stjórnenda og stjórnar Landsbanka var í tengslum við Icesave.

Vonandi tekst að endurheimta eitthvað af þessu fjármagni sem falla mun á íslendinga vegna ævintýramennsku og gróðafíknar fáeinna manna og valin verði refsing við hæfi reynast þeir sekir.


mbl.is Ríkið í mál vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Hér stefnir allt í stórpólitísk réttarhöld. Þá getur verið gott fyrir Kjartan og félaga að eiga hauka í horni í Hæstarétti!

Svona er Ísland í dag.

Björn Birgisson, 21.8.2009 kl. 13:19

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Íslendingar eru ofdekruð þjóð sem mótmælir með því að stofna til facebook mótmæla, safna undirskriftlistum, nöldra á kaffistofum um hvað ástandið sé svo lélegt og óréttlátt en hvað gerir það ? jú fær sér meira kaffi og nöldrar meira... er fólk og upptekið að stofna mótmælalista á facebook ? Það er búið að brjóta niður sjálfstraust íslendinga og við erum lifandi afturgöngur og það er hlegið að okkur erlendis. Fólk er tilbúið að skella sér á allskonar uppákomur, sem dæmi mættu 30.000 manns á Fiskidaginn á dalvík, 30.000 manns ! og það mættu hvorki meira né minna en 80.000 manns á Gay Pride og þetta getur fólk mætt á en þegar það er verið að biðja fólk um að mæta til að mótmæla þá mæta nokkur hundruð hræður, t.d. mættu tæplega 3.000 mættu á samstöðufund vegna IceSave ... eru íslendingar með öll ljós kveikt og engan heima ? Um helgina er menningarnótt og má búast við 80.000 - 100.000 manns á þá menningarnótt, það er alveg kjörið að láta þetta verða stærstu mótmæli íslandssögunar og gera uppreisn "Power To The People" Ég vill fara að sjá 100.000 manns marsera að alþingi, bönkum og öðrum lánafyrirtækjum og bera þetta lið út með valdi eða gefa því viku til að hypja sig og kalla svo eftir aðstoð frá Interpol því hérna er verið að arðræna landið með aðstoð skilanefnda sem sendir almenningi reikninginn og íslendingar geta bókað það að það er búið að afskrifa milljarða tugi útrásarvíkinga og enginn veit af því vegna þess að hér er jú bankaleynd ...

http://simnet.is/freebsd/facebook1.jpg

Sævar Einarsson, 21.8.2009 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 818117

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband