Nýr liðsmaður Sjálfstæðisflokksins ?

Þar hefur Sjálfstæðisflokknum bæst nýr liðsmaður. Ég verð að segja það.... ég er svolítið hissa á að þingmaður VG skuli láta sig hafa það að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

En kannski ætti það ekki að koma á óvart í þessu máli. Þingmaður þessi er fyrst og fremst atvinnurekandi og sauðfjárbóndi og líklega eru hugmyndir og hugsjónir hans fyrst og fremst tengdar einkaframtakinu og sýn þess á mál.

Ekkert við það að athuga að menn fylgi sannfæringu sinni ... en líklega er viðkomandi þingmaður fyrir flokk sem ekki hentar hans skoðunum og lífssýn og því eðlilegt að hann söðli um.


mbl.is Rætt um ESB á Alþingi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Sennilega hættur við samkvæmt visir.is

Jón Ingi Cæsarsson, 10.7.2009 kl. 11:32

2 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Svo þú ert hissa á því, Jón Ingi, að það sé til fólk sem ekki lætur línuna að ofan segja sér hvernig það á að hugsa. Þú ert hissa á því að einhver vogi sér samstarf með Samfylkingunni án þess að gleypa allt hrátt sem frá henni kemur.

Svo sauðfjárbændur og atvinnurekendur eru óvinirnir.

Svo skilgreining þín á sjálfstæðismönnum virðist vera sú að það sé fólk sem fylgir sannfæringu sinni. Þar er ég reyndar sammála þér, enda er gott að vera sjálfstæðismaður. 

Emil Örn Kristjánsson, 10.7.2009 kl. 14:18

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég hvet alla, til að lesa, nýjustu hagspá Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins:

http://ec.europa.eu/economy_finance/publications/publication15487_en.pdf

Spá Framkvæmdastjórnarinnar, er að:

  • kreppan, skapi varanlegt efnahagslegt tjón fyrir hagkerfi Evrópu. Það tjón, vinnist aldrei til baka. Þegar ég las þetta, úr þeirra eigin skýrlsu, takið eftir. 
  • tjónið, er einnig mjög alvarlegt, vegna fólksfjölda-þróunar, innan aðildarlandanna, þ.s. fækkun vinnandi handa, er við það að fara af stað. Áhrif þeirrar þróunar, draga einnig úr langtíma-hagvexti.
  • vek athygli á bls. 47, þ.s. borið er saman 'rebound', 'lost decate' og 'permanent shock'. Ég bendi á, að miðspáin, er 'lost decate'.
  • ef þetta er ekki nóg, mun kreppan auka, 'structural unemployment'. Spáin, er að það muni taka 'ár' að vinna úr því, tjóni, einu sér.
  • til viðbóta við allt, þett: mjög alvarleg skuldaaukning, ríkissjóða landanna.

Ég þarf ekki, að segja meira. Lesið þetta sjálf.

Hvað þýðir þetta fyrir Íslands? Augljóslega, gerir þetta það minna 'attractive' að ganga í ESB. Einnig, þ.s. ESB kaupir mest af því sem við flytjum út, þarf að reikna niður væntingar, um efnahagsþróun hérlendis.

Núgildandi spár, eru greinilega allt og bjartsýnar; sem gera ráð fyrir að hagvöxtur fari af stað af krafti, þegar á næsta ári. 

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 10.7.2009 kl. 14:32

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hva? Er þetta fólk ekki bara að fara fram á lýðræðið sem þér hefur verið svo tíðrætt um. Sé ekki mikið að því að fólk fái að kjósa um hluti. Nema náttúrulega að fólk sé fífl eins og maðurinn sagði um árið.

Víðir Benediktsson, 10.7.2009 kl. 17:22

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Var ég nokkuð að hafa á móti því að maðurinn hefði sína skoðun ?? Lesa betur. Víðir... ættum við þá ekki að kjósa næst um hvort við ættum að kjósa um að kjósa í þjóðaratkvæði... Fyrst kjósum við um hvort við eigum að kjósa um að kjósa í þjóðaratkvæði, svo kjósum við um að fara í viðræður og svo kjósum við um niðurstöðu viðræðna..

Víðir... stjórnmálamenn eru kosnir til að taka ákvarðanir.. þjóðaratvæði er til að fá niðurstöðu og þjóðarvilja í risamálum... viðræður eru undanfari þess að þetta verði stórmál...  ertu að vonast til að mál haldi áfram í skotgröfum og þjóðin fái aldrei að kjósa um það sem máli skiptir... í ESB eða ekki í ESB það er málið.

Jón Ingi Cæsarsson, 10.7.2009 kl. 17:55

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef niðurstaða kosninga yrði sú að fara ekki í aðildaviðræður þarf ekkert að kjósa neitt meira um það. Mörg ríki hafa efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu af minna tilefni.  Læðist að manni grunur að hér sé um svokallað hentilýðræði að ræða. Þ.e. beita því þegar hentar en láta eins og maður hvorki heyri né sjái þess á milli. Sjálfur vildi ég fáað kjósa um sem flesta hluti líkt og gert er í Sviss. Svisslendingar komast ágætlega af þó fólkið fái að ráða meira þar en annarsstðar.

Víðir Benediktsson, 10.7.2009 kl. 18:36

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég tel að það sé bara rétt að þjóðin fái að segja til um það hvort farið verði í þessar viðræður -
Það var talað um ný vinnubrögð - jú það eru vissulega ný vinnubrögð á alþingi skoðanakúgun á eigin þingmenn og leyna gögnum fyrir þingi -

Óðinn Þórisson, 10.7.2009 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband