29.3.2009 | 18:50
Formaður með lítinn stuðning.
Það hefur verið fyrir því hefð að formenn Sjálfstæðisflokksins fá afgerandi kosningu. Nú bregður svo við að nýr formaður, Bjarni Benediktsson, nær ekki 60% sem eru tíðindi. Ég held að nýjum formanni hefði líkað það betur að fá meira en aðeins 58% atkvæða.
Ég þekki ekki vel til Sjálfstæðisflokksins en mér þætti fróðlegt að fá það upplýst hvort og þá hvenær formaður Sjálfstæðisflokksins hafi fengið jafn lítinn stuðning og Bjarni Benediktsson fékk í dag.
Bjarni kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er þetta nokkuð óeðlileg niðurstaða þegar fleiri en einn er í framboði? Hvað fékk Ingibjörg mörg prósent umfram Össur á sínum tíma?
Víðir Benediktsson, 29.3.2009 kl. 19:28
Fólk fékk allavega að velja úr fólki til formanns. Annað en var hjá flokkum sem kenna sig við jafnaðarmennsku
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.3.2009 kl. 19:31
Ég var nú bara að spyrja hvenær formaður Sjálfstæðisflokksins hefði verið kosinn með jafn litlu fylgi ?? Vitið þið það nokkuð ? Gísli... þú sennilega veist það ekki en það eru allir í kjöri ... þannig að valið stóð um 20.000 manns svona tækinlega séð
Víðir... ég man það ekki þó nokkur 6 og eitthvað.... og enn meiri þegar Össur vann Tryggva.
Jón Ingi Cæsarsson, 29.3.2009 kl. 19:39
Þetta hefur ekki gerst síðan Davíð vann Þorstein. Var Það ekki 49-51 eitthvað svoleiðis? Hefur nokkuð verið bardagi um þetta sæti síðan? Þorsteinn vann Friðrik nokkuð örugglega á sínum tíma, man ekki með hvaða tölum.
Víðir Benediktsson, 29.3.2009 kl. 19:50
Þetta er einfaldlega rugl. Síðasti formaður Sjálfstæðisflokksins sem var kjörinn með svipað eða minna fylgi en Bjarni er kjörinn nú, er Davíð Oddsson, þegar hann hafði nauman sigur á Þorsteini Pálssyni. Síðan þá hefur ekki verið kosið á milli tveggja sterkra einstaklinga sem hafa boðið sig fram til að gegna formannsstöðu í Sjálfstæðisflokknum.
Það er því ekkert nýtt að formaður í stjórnmálaflokki hafi í kringum 60% fylgi. Það gildir auðvitað annað þegar aðeins einn er í framboði, rétt eins og Jóhanna nú.
G. Tómas Gunnarsson, 29.3.2009 kl. 19:54
Rétt Víðir enda bauð Davíð sig fram gegn sitjandi formanni sem voru stórtíðindi og fátíð þarna ef ekki einstök. G Tómas... ég aftur á móti leyfi mér að efast um fullyrðingu um að Geir Haarde hafi fengið jafn lítið fylgi og Bjarni.. hann var jú varaformaður að taka við af Davíð sem var að hætta. Ég man ekki eftir mótframboði þá en má vel vera að svo hafi verið. Annars er þetta ekki langur listi því formenn Sjálfstæðisflokksins hafa gjarna setið lengi.
Jón Ingi Cæsarsson, 29.3.2009 kl. 20:03
Getur Jón Ingi upplýst af hverju enginn fór fram á móti Jóhönnu? Ef ég man rétt þá vildi Jóhanna ekki fara í jobbið? Hún var neydd í þetta. Mjög jafnaðarmannalegt
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.3.2009 kl. 23:26
Auðvitað er það umhugsunarefni að menn eins og Dagur og Árni Páll hafi hvorugur treyst sér í formanssframboð í sf.
Óðinn Þórisson, 30.3.2009 kl. 16:01
Nafni minn Gísli og Óðinn hafa áhyggjur af forystumálum Jafnaðarmannaflokks Íslands. Nú get ég fullvissað þá að þær áhyggjur eru tilefnislausar. Getið þið ekki fundið eitthvað annað s.s. fjallræða frelsarans?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.