Til atlögu við ættarveldið... spái 60% 40% fyrir Bjarna.

Kristján Þór er brattur. Hann kýlir á það og leggur til atlögu við ættarveldi og valdstjórn Sjálfstæðisflokksins. Hann fór í Þorgerði til varaformanns og uppskar 30% að mig minnir.

Hann hefur engu að tapa... er ekki inn hjá foringjaklíkunni fyrir sunnan og hefur aðeins fengið léttvæg verkefni og kom ekki til greina sem ráðherra í síðustu ríkisstjórn.

Kristján er ekki brattur að ástæðulausu. Hann á undir högg að sækja í kjördæminu og Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að mælast afspyrnu illa. Ólöf Nordal flúði suður því henni var ljóst að þriðja sætið í NA var í alvarlegu uppnámi.

Það er því nauðsynlegt fyrir Kristján Þór að skora á einhverjum vettvangi og þarna er tækifæri fyrir hann.

Ég hef að vísu enga trú á að hann vinni og spái 40-60 fyrir Bjarna Ben með alla flokks og ættarklíkuna á bak við sig.... en þetta er hugrekki hjá Kristjáni og ef hann tapar er þetta líklega síðasta kjörtímabil hans á þingi.


mbl.is Kristján Þór í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kristján er knár og brattur
kýlir á bratta völ.
Ránfuglinn reittur, fattur
flokksins er pína og kvöl.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 21:19

2 identicon

Sæll Jón Ingi

Ég er þess fullviss að þetta verður ekki svona öruggt hjá Bjarna. Ég tel að Kristján eigi meira en raunhæfan möguleika. Það er alveg ljóst að margir vilja að flokkurinn breyti um ímynd og verði alþýðlegri og mannlegri. Ég tel að kosningarnar muni ekki að öllu leiti snúast um persónurnar sjálfar heldur fyrir það hvað þessir menn standa fyrir. Ég tel að Bjarni eigi eftir að tapa á því að koma úr forminu og vera þar að auki nánast mini me af Geir Haarde.  Auk þess má ekki gleyma því að Kristján Þór hefur margfalt meiri reynslu af stjórnmálum en Bjarni. Bjarni er vænsti maður og framtíðar forustumaður en hans tími er ekki kominn. Við landsbyggðarfólkið verðu að hætta að líta svo upp til höfuðborgarsvæðisins að við teljum að þaðan þurfi allt gott að koma.

Kveðja ÞL   

Þráinn Lárusson (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 22:30

3 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Gísli Baldvin, það er ljóðstafavilla í seinni hluta vísunnar hjá þér.

Emil Örn Kristjánsson, 22.3.2009 kl. 23:11

4 Smámynd: Benedikt V. Warén

Einar Örn.  Þetta er svokölluð Gísl-henda, sjá annað dæmi:

Gísli er býsna góður,

glettinn og fróður

Bloggar eins og óður 

- Samfylkingafóður.

Benedikt V. Warén, 23.3.2009 kl. 09:06

5 Smámynd: Benedikt V. Warén

Emil Örn...... átti að standa hér fyrir ofan - afsakaðu!

Benedikt V. Warén, 23.3.2009 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband