Framsóknartitringur.

Framsóknarflokkurinn virðist vera að lenda í nokkrum vanda með að handraða endurnýjun flokksins inn á lista. Fyrir helgina kom í ljós að fresta varð uppstillingu í Reykjavík og kenningar um ástæður þess eru nokkuð misvísandi.

Nú virðist sem eitthvað sé að gerjast hér í Norðaustrinu þar sem flokkurinn á sitt sterkasta vígi. Við brotthvarf Valgerðar hlaut eitthvað að gerast og okkur leikmönnum er nokkur forvitni á að vita í hverju þessi ólýðræðislegu vinnubrögð kjördæmisforustunnar eru fólgin.

Það skín svolítið í gegn að verið sé að handraða atburðarás sem leiði til sigurs ákveðinna, fyrirfram, þóknanlegra frambjóðenda. Það er alltaf slæmt þegar svoleiðis gerist. Jafnvel þó þetta sé ekki rétt og rekja megi þetta til kosningapirrings er umræðan slæm.

Mér segir svo hugur að búið sé að stilla málum upp með þeim hætti að Birkir Jón verði efstur og Þórhallur í öðru sæti o.s.frv. Bernharð tekur sig greinilega ekki inn hjá kjördæmisforustunni.


mbl.is Segir lýðræðið fótum troðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ég verð að viðukenna Jón aðég hef talsverðar áhyggjur af sf.
1. Ingibjörg virðist ekki treysta neinu af unga fólkinu í sf fyrir forsætisráðuneytinu né formennsku í flokknum
2. Flokksforystan er búin að að ákveða að þær systur verði í 1 og 2 í Reykjavík og Össur í 3 sæti - gleymdi einhver að segja þessu fólki að þar er eitthvað framundan sem heitir prófkjör
3. Steingrímur hefur sagt að ekki verði af Bakka og Helguvík - mun sf brotna
4. Sigmundur Davíð er ekki sáttur við frammistöðu ríkisstjórnarinnar og vill að hún fari að gera eitthvað.

Óðinn Þórisson, 2.3.2009 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 818127

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband