9.5.2008 | 07:09
Stórkostlegt skref.
Núverandi meirihluti á Akureyri, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur rauf áratuga kyrrstöðu í úrgangsmálum á Eyjafjarðarsvæðinu. Því miður höfðu mörg ár glatast meðan þessi mál voru í farvegi byggðasamlags. Sorpeyðingu Eyjarfjarðar bs. var slitið fljótlega eftir síðustu kosningar og stofnað hlutafélag í samvinnu fyrirtækja og sveitarfélaga á svæðinu. Jarðgerð er að hefjast og úrgangsmál á Akureyri eru komin í farveg með stóraukinni flokkun og nýtingu. Innan árs er von manna að jarðgerðin verði komin á fullan skrið og allur lífrænn úrgangur á svæðinu unnin í moltu.
Í framhaldi af þessu verður hægt að loka sorphaugunum á Glerárdal og þá getur endurreisn náttúru og landgæða hafist á því svæði af fullum krafti. Það mun hefjast að hluta í sumar með undirbúningi og landmótun á svæðum umhverfis haugana.
Nútíminn er kominn í Eyjafjörðin í þessum málaflokki og gaman að sjá afrakstur þeirrar vinnu sem lengi hefur staðið í mínun hópi innan Samfylkingarinnar á Akureyri.
Jarðgerðarstöð reist í Eyjafjarðarsveit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 818824
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Loksins, loksins! Þetta er gott mál. Það að þakka Samfó þetta er að vísu frekar broslegt:) Bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 9.5.2008 kl. 08:42
Það geri ég hiklaust enda búinn að berjast fyrir þessu sjálfur frá 1998. Sat í stjórn Sorpeyðingar frá 1998-2002 og kynntu þér stefnuskrá okkar fyrir kosningarnar síðustu....
ertu öfnundsjúkur af því VG hafði ekki hugmyndaflug til að berjast fyrir þessum málum ?
http://www.samak.is/?mod=sidur&mod2=view&id=36
Forgangsverkefni
Sorpmálin og lausn þeirra verður forgangsverkefni. Við lausn þeirra til framtíðar verður tekið mið af því besta og fullkomnasta sem til er hjá nágrannaþjóðum okkar. Strax eftir kosningar beiti bæjarstjórn Akureyrar sér fyrir stofnun starfshóps hagsmunaðila í samvinnu við sveitarfélögin sem aðild eiga að Sorpeyðingu Eyjafjarðar bs. og atvinnulífsins. Starfshópur þessi fái það verkefni að
Starfshópurinn taki þegar til stafa og skili fullmótaðri áætlun fyrir árslok 2006.
Jón Ingi Cæsarsson, 9.5.2008 kl. 09:09
Kæri Jón Ingi C.
Marga lesti hef ég en sem betur fer er öfundsíki ekki einn þeirra :)
Kristín Sigfúsdóttir hefur barist fyrir þessum málum af krafti auk margar annarra, og það veist þú kæri Jón Ingi C.
En þú er líka ágætur. Takk fyrir þetta og bestu kveðjur,
Hlynur Hallsson, 9.5.2008 kl. 09:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.