10.2.2008 | 03:34
Hafnarstræti - götumynd
Nú er búið að auglýsa Hafnarstræti 98, Hótel Akureyri til sölu. Eins og margir muna friðaði menntamálaráðherra þetta "glæsilega" hús. Húsafriðunarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að húsið væri ómetanlegur hluti af heild og tengdi það sennilega við húsin næst fyrir sunnan það, hið glæsilega hús París og svo nýuppgerða Hamborg á horninu.
Sem betur fer má nú reikna með að hugsjónamenn þeir sem börðust fyrir tilvist og verndun hússins láti nú til sín taka og kaupi það og geri upp. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er talið að viðgerðir og upptekt á útlitinu einu saman og að koma húsinum í upphaflegt útlit kosti um 55 milljónir og menn ættu nú ekki að vera í vandræðum með að snara út slíku smáræði fyrir málstaðinn.
Og svo ef menn vilja koma húsinu í brúk og gera það klárt til slíks samkvæmt nútímastöðum og öryggsreglum þarf að skjóta fram svona 50 - 100 millum í viðbót og ekki held ég að standi á því.
Hér að ofan setti ég inn gamla mynd úr Hafnarstræti. Næst okkur sér aðeins í Hamborg og næst er París... Hafnarstræti 96. Svo kemur bil því Hótel Akureyri er ekki risið. Enn fjær sér í Hafnarstræti 100 og 102 sem brunnu. Rotterdam brann á stríðárunum og það varð frægur bruni því mikið áfengi var geymt í húsinu á vegum setuliðsins og margir urðu góðglaðir við slökkvistarfið.
Vestan götunnar sér í hús Dúa lögregluþjóns og við hliðina hið reisulega Jerúsalem sem var látið víkja fyrir Vöruhúsi Kea í æsku minni.
Kannski er þetta götumyndin sem ætti að varðveita ef menn vilja Hafnarstrætið eins og það var. En það er nokkuð seint í rassinn gripið því flest þessara húsa sem hér sjást eru horfin og það sem tekist er á um í dag er ekki komið. Mér sýnist þó á þessari mynd að sjáist merki þess að menn séu að byrja að byggja Hafnarstræti 98. Svei mér þá ef ekki sést í kjallarann í bilinu norðan Parísar.
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Umræðan um húsavernd er komin út í öfgar. Hvaða götumynd á að vernda? Halda menn að friðun á Hafnarstræti 98 sé búið að vernda götumyndina? Væri ekki nær að fletta malbikinu af og hafa götuna malarborna eins og var á sínum tíma? taka niður þessa nútímalegu ljósastaura og setja upp tréstaura með utaná liggjandi köplum? Leggja raf- og símalagnir milli staura ofan jarðar? Þá fyrst myndum við endurheimta götumyndina sem þetta fólk er að kalla eftir.
Páll Jóhannesson, 10.2.2008 kl. 13:09
Ég spái því að kautilboð í Hafnarstræti 98 hljóði uppá 1 kr.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 14:01
Hmmm http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/02/11/slokkvilid_akureyrar_kallad_ut_ad_hafnarstraeti/?from_blog=1 fóru þeir húsavillt?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.