20.10.2007 | 14:21
Aumir kenna öðrum um.
Ég hef fylgst með þessu dæmalausa máli í Reykjavík úr fjarlægð og veit kannski minnst um þann sannleika sem okkur er örugglega ekki sagður. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú lagst í það sem hann kann best, kenna öðrum um. Í því hafa stjórmálamenn í þeim flokki sérþekkingu á og enginn fer í sporin þeirra hvað það varðar.
Nú hefur Hanna Birrna tekið upp það sem ungum stjórnmálamönnum í Sjálfstæðisflokknum og þeim er kennt með pólitískri móðurmjólk, að kenna öðrum um.
Allt tal um að meirihlutasamstarfið hafi farið út um þúfur vegna ágreinings í hópi sjálfstæðismanna eru hrein ósannindi. Sú kynslóð framsóknarmanna sem Björn Ingi Hrafnsson tilheyrir er þekkt fyrir ákveðnar spunaáherslur í stjórnmálum."
Það er ekki annað hægt en hlægja að þessum fullyrðingum. Ég hélt satt að segja að Hanna Birna væri efnileg stjórnmálakona og ætti framtíðina fyrir sér. En svo fellur hún á fyrsta prófi og valdagræðgi og frekja verður henni að falli. Hún virðist vera afar sjálfviðmiðuð og sennilega hefur metnarðargirnd og græðgi hennar í völd orðið henni að falli. Það er lítill vandi að standa sig þegar vel gengur en þeir falla á prófum sem ekki hafa þetta í sér þegar síður gengur. Hanna Birna hefur gert sig seka um alvarlegt pólitískt dómgreindarleysi og því held ég að hennar tími innan Sjálfstæðisflokksins sé liðin þó svo aftakan fari fram síðar.
"Skortur á samráði á milli okkar og borgarstjóra er fullkomið aukaatriði á meðan hagsmunagæsla Björns Inga er aðalatriðið"
Þessi setning sem eftir borgarfulltrúanum eru höfð sína að hún hefur enn ekki skilið hvað gerðist í raun og veru. Hún er ekki enn farin að átta sig á að meirihlutinn féll vegna samstöðuleysins Sjálfstæðismanna en ekki að því Björn Ingi brást þeim. Það að hann sleit samstarfinu var vegna þess að Sjálfstæðismenn voru ekki samstarfshæfir vegna valdabaráttu og innri sundrungar.
Hver skildi geta sagt þessari ótrúlega sjálfviðmiðuðu konu þetta þannig að hún skilji það. Sennilega mun hún aldrei átta sig á því að hún er sennilega hvað sekust í því máli því hana langaði svo til að vera borgarstjóri.
Við sinntum störfum okkar vel" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sælir
Flott hjá þér.
mbk.
Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 00:40
Tek undir þetta. Þetta er hörmuleg pólótík að berja svona hausnum í steininn.
Jón Halldór Guðmundsson, 21.10.2007 kl. 10:35
Eigum við ekki að bíða og sjá hveð gerist á næstu vikum.
Þá mun hið sanna koma fram í þessu máli, en sumir vita meira en aðrir ...
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 23.10.2007 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.