3.4.2022 | 08:56
Er Strandgata 17 söluvara ?
Bókun Umhverfis og mannvirkjaráðs vakti athygli mína. Eins og flestir vita eru húsin nr. 17 og 27 vandamál við hina merku Strandgötu sem er líklega fjölfarnasta gata á Akureyri hvað verðar ferðamenn. Þarna eiga þúsundir leið um og þetta er sú leið sem ferðamenn af skemmtiferðaskipum fara um á leið til Miðbæjarins. Leiðin er vörðuð upplýsingaskiltum um sögu svæðisins og vekja mikla athygli.
Húsið númer 27 hefur verið í óboðlegu ástandi árum saman en hafist var handa við endurbyggingu þess og það lofaði góðu en strandaði fyrir löngu. Húsið nr. 17 sem er í eigu bæjarins hefur einnig verið lýti og viðhaldi og umhirðu stórlega ábótavant af hálfu bæjarins. Bæði eru þessi hús friðuð vegna aldurs og hluti af heild.
Það lofað því góðu að ákveðið var að endurbyggja húsið í upphaflegri mynd. Flestir reiknuðu með að bærinn kæmi að því máli með reisn og myndarskap því vandséð var að nokkkur einstaklingur hefði áhuga og getu til að endurbyggja hús sem stendur við þjóðveg 1, lóðarlaust og líklega alveg ónýtt þegar það verður skoðað innan við múrhúðina.
Hvaða söluverð hugsar ráðið að sé sanngjarnt ?
En svo kemur þessi furðubókun ráðsins þar sem gert er ráð fyrir að húsið verði selt og kaupanda gert að endurbyggja húsið á sinn kostnað. Það er vandséð að nokkur maður fáist til að leggja milljónatugi í að endurbyggja hús með þeim kvöðum sem því eiga að fylgja, auk þess sem húsið mun seint verða söluvara sem íbúðahús á þessum stað og auk þess er húsið svo agnarsmátt að það mun varla uppfylla nútímakröfur um íbúðarhúsnæði
Óneitanlega velur þessi bókun áhyggjum. Hætt við að hún muni framlengja ástandið við Strandgötu um ófyrirsjáanlega framtíð og þarna muni ekkert gerast frekar en í húsinu spölkorn neðar við Strandgötuna.
Það eru vonbrigði að sjá þessa bókun sem lýsir metnaðarleysi og uppgjöf. Þetta hús á Akureyarbær að endurbyggja og nýta síðan sem safnahús fyrir gesti og gangandi. Ég er hræddur um að þarna verði aldrei íbúðarhús í nútímakerkingu þess orðs.
Strandgatan er ásamt Innbænum merkasta ferðamannasvæði Akureyrar ásamt því að vera ómetanlegur menningarafur bæjarins. Þar þarf að vera boðlegt ástand til framtíðar.
Bókun ráðsins.
Strandgata 17 - framtíð hússins
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
agny
-
malacai
-
megadora
-
gumson
-
skagstrendingur
-
agustolafur
-
bjarnimax
-
bleikaeldingin
-
bookiceland
-
gattin
-
bibb
-
dofri
-
ragnagrondal
-
fsfi
-
saltogpipar
-
gisliivars
-
gretar-petur
-
lucas
-
mosi
-
gudrunkatrin
-
nelson
-
coke
-
hehau
-
hemba
-
helgivilberg
-
hildajana
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlynurh
-
slubbert
-
minos
-
hordurj
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jakobk
-
leicester
-
rabelai
-
jonhalldor
-
joninaros
-
jonerr
-
jonsnae
-
thjodarskutan
-
kafteinninn
-
ktomm
-
kjarri
-
kjarrip
-
ksk
-
kristjanmoller
-
larahanna
-
lara
-
lillagud
-
magnusmar
-
olafurjonsson
-
skari60
-
pallijoh
-
ljosmyndarinn
-
fjardarheidi
-
safi
-
siggisig
-
stebbifr
-
svavaralfred
-
svenni
-
saemi7
-
saevarh
-
sollikalli
-
valdisa
-
vestfirdir
-
tbs
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.