Hverjir bera ábyrgð á gróðaliðinu að sunnan ?

2021  00002Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, birti í kvöld á Facebook síðu sinni uppsagnarbréf sem 64 ára kona fékk frá Heilsuvernd. Hún hefur starfað á Öldrunarheimilum Akureyrar í 20 ár. Uppsagnarfrestur er sex mánuðir og ekki er óskað eftir því að konan vinni þann tíma. „Svei þeim og svei arðvæðingunni! Nú á að losa sig við „dýra“ starfsfólkið og ná „hagræðingu“. Starfsfólkið er fyrst til að taka skellinn, þetta líðst með vitund og vilja ríkis og sveitarfélagsins!“ skrifar Drífa Snædal.

 

Einkafyrirtæki að sunnan er mætt til að reka öldrunarheimilin á Akureyri með gróða. Segja upp fólki og annað hvort er að fækka fólki, draga úr þjónustu eða ráða ódýrari starfskraft. Annars ganga áform þeirra ekki eftir. Næstu kjarasamningar á þessum vinnustað verða síðan erfiðir því nýjir rekstaraðilar munu enn leitast við að hámarka gróðann með lélegum samningum.

 

 

Hverjir bera ábyrgð á þessum óheillagjörningi?

 

  • Heilbrigðisráðherra 
  • Vinstri grænir 
  • Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og fylgitungl þeirra 

 

  • Allir þessir auk bæjaryfirvalda á Akureyri, sem héldu ekki út hallareksturinn. Það er þó það sem er skiljanlegast í þessum hörmungum.

 

Hverjir líða svo fyrir þetta ?

  • Aldraðir vistmenn, verri þjónusta og annað starfsfólk
  • Brottreknir starfsmenn sem margir hverjir hafa þjónað öldruðum á Akureyri í langan tíma, sumir í áratugi.
  • Ættingjar og vinir vistmanna, sem munu sannarlega hafa áhyggjur af sínu fólki í krumlunum á gróðavæddu einkafyritæki.

 

Þessi gjörningur er öllum sem hlut eiga að máli til ævarandi skammar og vonandi verður hægt að vinda ofan af þessu óheillamáli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Stærsta ábyrgðin er að sjálfsögðu hjá bæjaryfirvöldum á Akureyri og svo er það þessi hræðsla Vinstri manna við einkavæðingu  sem er að fara meið heilbrigðiskerfið til andskotans hér á landi.....

Jóhann Elíasson, 20.6.2021 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818229

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband