27.5.2018 | 11:24
Ömurleg umgengni Húsasmiðjunnar.
Akureyri á dásamlegt friðland í Krossanesborgum nyrst í bæjarlandinu.
Á landamerkjum Akureyrar og Hörgársveitar rennur Lónslækurinn eða Lónsáin, kölluð þessum nöfnum báðum.
Hinu megin við Lónsána, í landi Hörgársveitar er rekið virðulegt byggingavörufyrirtæki, þekkt á landsvísu.
Það er ekki gaman að ganga um og skoða fugla og náttúru þegar komið er nærri umráðasvæði þessa fyrirtækis.
Rusl og drasl um allt og lækurinn fullur af ýmiskonar úrgangi.
Vona að Hörgársveit fari í það að þrýsta á viðkomandi fyrirtæki svo ekki þurfi að grípa til annarra úrræða.
Við sem viljum njóta náttúru og dýralífs í fólkvanginum Krossanesborgum viljum ekki þurfa að horfa upp á slíka hörmung mikið lengur.
Ég skora á fyrirtækið að líta í eigin barm og bregðast við ósómanum.
Þeir hljóta að hafa meiri metnað en þetta.
Um bloggið
Jón Ingi Cæsarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- agny
- malacai
- megadora
- gumson
- skagstrendingur
- agustolafur
- bjarnimax
- bleikaeldingin
- bookiceland
- gattin
- bibb
- dofri
- ragnagrondal
- fsfi
- saltogpipar
- gisliivars
- gretar-petur
- lucas
- mosi
- gudrunkatrin
- nelson
- coke
- hehau
- hemba
- helgivilberg
- hildajana
- hildurhelgas
- himmalingur
- hlynurh
- slubbert
- minos
- hordurj
- ingolfurasgeirjohannesson
- jakobk
- leicester
- rabelai
- jonhalldor
- joninaros
- jonerr
- jonsnae
- thjodarskutan
- kafteinninn
- ktomm
- kjarri
- kjarrip
- ksk
- kristjanmoller
- larahanna
- lara
- lillagud
- magnusmar
- olafurjonsson
- skari60
- pallijoh
- ljosmyndarinn
- fjardarheidi
- safi
- siggisig
- stebbifr
- svavaralfred
- svenni
- saemi7
- saevarh
- sollikalli
- valdisa
- vestfirdir
- tbs
- thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Jón Ingi
Ríkarð Svavar Axelsson heiti ég og er deildarstjóri hér í timburdeildinni hjá Húsasmiðjuni á Lónsbakka.
Ég sé að við eigum eitt sameiginlegt áhugamál en það er náttúrann og fuglalíf. Vil ég því þakka þér fyrir ábendinguna.
Þetta er að koma undan snjó og er því ekkert að koma okkur á óvart.
Við viljum hafa snyrtilegt í kringum okkur og verður þessu kippt í lag við fyrsta tækifæri.
Ríkarð Svavar Axelsson (IP-tala skráð) 28.5.2018 kl. 09:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.