Sjálfstæðisþingmenn í skotgrafahernaði stöðvuðu VG liða.

Útlit er fyr­ir að kosn­inga­ald­ur í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um verði óbreytt­ur, 18 ár. Frum­varp um lækk­un kosn­inga­ald­urs niður í 16 ár var tekið til þriðju umræðu á Alþingi í gær.

Í þessu máli fengu VG þingmenn að smakka á óbilgirni og vinnubrögðum samþingmanna þeirra í ríkisstjórnarmeirihlutanum.

Sjálfstæðisþingmönnum er aldrei treystandi gangi eitthvað gegn skoðunum þeirra. Í þessu tilfelli fóru þeir í skotgrafir og komu í veg fyrir að meirihluti þingmanna gætu samþykkt frumvarpsdrög sem lágu fyrir.

VG þingmenn eiga eftir að smakka á fleiri svona málum og þeir eiga eftir að komast að því hvernig er að vinna með Sjálfstæðis og Framsóknarflokknum.

Það er örugglega súr seiður að kyngja.


mbl.is Frumvarpið í raun dautt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórnmál ganga venjulega út á að útlista kosti stjórnmálastefnu og færa rök fyrir henni. Það getur verið erfitt þegar skýra á kosti ESB og annað í þeim dúr. Þess vegna gengur málflutningur Loga og félaga út í níð og róg um aðra. En það þarf ákveðna tegund manna í slíkt. Gott dæmi ert þú.

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 24.3.2018 kl. 19:46

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nú eru vinstrimenn aldeilis farnir að setja upp álpappírshúfurnar. Að reyna að sýna fyrirsynju í þessu máli og hlusta á alit ráðuneyta og sérfræðinga um að ganga hægt um gleðinnar dyr, er nú orðið allsherjar samsæri "hægrimanna".

Eruð þið kollektíft gengnir af göflunum? Fyrir 16 árum fæddust um 3000 börn á íslandi, eru það sálirnar sem slitist er um?  Hver er meiningin með þessu? Er hún að bæta þúsund börnum á kjörsrá í reykjavík, ef þau hafa þá áhuga á að kjósa?

Austurríki er eina landið með slík lög og örfá fylki í þýskalandi leyfa þetta í sveitastjórnarkosningum.

það vefjast sannarlega ekki fyrir ykkur stóru máli. Allt verður þó tilefni til móðursýkislegra upphlaupa og samsæriskenninga.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.3.2018 kl. 19:47

3 Smámynd: Réttsýni

Ef það væri einhver manndómur í Katrínu og Svandísi þá myndu þær leggja til stjórnarslit strax í stað þess að bíða hins kvalarfulla og óhjákvæmilega dauða þess. Illu er best aflokið. En það er bara enginn manndómur í þeim.

Réttsýni, 24.3.2018 kl. 20:09

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ástand heilbrigðis, vega, velferðar og menntakerfis Íslands er í rúst. 

 Að gera þetta barnakosningakjaftæði að myllusteini og helsta áherzlumáli Alþingis, dettur einungis fávitum í hug og hananú!

 Gjörsamlega galin umræða og úr öllum takti við það sem virkilega skiptir máli. Andskotans fífl á þingi og umræðan grátlega galin um svona djöfulsins þvælu.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.3.2018 kl. 03:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband