Grunnhyggnisleg greining þingmanns ?

Efna­hags­stjórn­in virk­ar ekki sem skyldi þegar við búum við verðtrygg­ingu skulda. Það er sama hvað stýri­vext­ir eru hækkaðir mikið, þegar við deil­um hækk­un­inni á all­an láns­tím­ann líkt og gert er í dag þá hef­ur hún til skamms tíma lít­il sem eng­in áhrif. Þetta var m.a. ástæða þess að við náðum ekki að kæla hag­kerfið þegar á þurfti að halda fyr­ir hrunið,“ seg­ir þingmaður­inn enn­frem­ur. Hann seg­ir ljóst að end­ur­skoða þurfi pen­inga­stefnu Íslands og að ótrú­legt sé að það skuli ekki hafa verið gert strax eft­ir fall viðskipta­bank­anna.

_______________________

Hversu skynsamleg er greining þingmanns Heimsksýnar þegar hann tekur að verðtryggingin sé vandi íslensks efnahagslífs.

Auðvitað er verðtryggingin vandi sem slík.

En þingmaðurinn ætti kannski að velta fyrir sér af hverju þessi ófögnuður er eitt af stóru málunum í efnahagslífinu og enginn stjórnmálaflokkur eða stjórnmálamaður hefur talað fyrir því í alvöru að afnema hana.

Vandinn er afar veikt efnhagslíf, brotgjarnt og ónýtur gjaldmiðill sem hvergi er viðurkenndur.

Verðtryggingin er afleiðing en ekki orsök.

Þetta ætti lykilmaður í Heimksýn að vita enda berjast þeir fyrir því að halda Íslandi einangruðu og heimsvísu hvað varða efnahagsumhverfi og tryggja þar með að verðtryggin verður sennilega aldrei afnumin í óbreyttu kerfi.

Greining hans á vandamálinu vekur spurningar um sýn hans á íslenskan veruleika.

 


mbl.is Vandinn er verðtryggingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er nákvæmlega kjarni málsins hjá þér Jón Ingi en ekki láta þér detta það í hug eina mínútu að þetta Heimskusýnar lið skilji þetta.

Ef ég ætti 100 miljónir íslenskra króna hér á landi og ég myndi vilja ávaxta það með sem bestum hætti, þá væri um 3 leiðir að ræða fyrir mig: 1. kaupa strax erlendan gjaldeyrir til að koma í veg fyrir rýrnun á fjármununum vegna óstöðugs gengis krónunnar, 2. fjárfesta í steinsteypu eins og gert var í gamla daga fyrir gengistryggingu,3. að bjóða uppá vertryggð lán með tiltölulega háa vexti, og það er einmitt kjarni málsins, fjármagnseigendur eru ekki tilbúnir að lána krónur nema að þær séu verðtryggðar og með háum vöxtum einfaldlega vegna þess að fjármagnseigendur hafa enga trú á krónunni nema að hún sé bæði með belti og axlarbönd.

Ef verðtrygging verður afnumin, þá munu við sjá sama ástand og var hér fyrir verðtryggingu í kringum 1980, þ.e.s að nánast vonlaust verður að fá lán hvorki fyrir einstaklinga eða fyrirtæki og allur sparnaður í landinu mun hverfa.

Það er nefnilega alveg rétt hjá þér Jón Ingi, að verðtryggingin er afleiðing þess að fámenn þjóð er að berjast í einhverju þjóðernis rugli að hafa sín eigin gjaldmiðil og fórnarkostnaðurinn er ægilegur.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 25.8.2015 kl. 15:07

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Og ofan í kaupið er Ásmundur hér að hengja bakara fyrir smið þegar hann kennir verðtryggingunni um það að vaxtahækkanir dreifist yfir lánstíman. Ef nafnvextir afborgunarlána hækka þá kemur sú hækkun strax fram að fullu í aukinni greiðslubyrði og á það jafnt við um verðtryggð og óverðtryggð lán. En ef um er að ræða jafngreiðslulán þá dreifist sú byrði að hluta yfir lánstíman með þeim hætti að afborgunrhluti þeirra lækkar að hluta á móti vaxtahækkuninni. Þetta á líka jafnt við um verðtryggð og óverðtryggð lán.

Þarna er Ásmundur að lepja upp bull sem Sigmundur Davíð hefur oft haldið fram í fjölmiðlum og af einhverjum ástæðum hefur engin leiðrétt það bull úr honum.

Sigurður M Grétarsson, 26.8.2015 kl. 08:30

3 identicon

 
En vitiði hvað..??, ég held samt að þetta sé að sýast hægt og rólega inn í höfuð einangrunarsinna.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 26.8.2015 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband