Stefna stjórnvalda veldur deilum og ágreiningi.

Við sjáum átök hér um fjölmörg málefni ekki bara um kaupið heldur um ýmis önnur atriði í samfélaginu. Það er skipting auðlindanna, arðurinn af auðlindum, hvernig á að skipta því. Það eru átök eða ágreiningur milli hópa; hver er betur settur en annar. Þannig að það er ágreiningur um fjölmargt í samfélaginum, sem að ég er alveg sannfærður um að hefur áhrif á stöðu kjaraviðræðna.“

________________

Ríkissáttasemjari hitti naglann á höfðuðið þegar hann á hógværan en skýran hátt lýsti sinni sýn á ástandið í landinu.

Þjóðfélagið logar í deilum, ástandið á Alþingi er hörmulegt og trúnaðarbresturinn algjör hvert sem litið er.

Ábyrgðin er að miklu leiti hjá þeim sem ráða, ríkisstjórninni og ríkisstjórnarflokkunum.

Traust til þeirra er hrunið til grunna og heiðarleiki stjórnarherranna er við frostmark samkvæmt könnunum.

Þetta má sannarlega til sannsvegar færa, frá því þessi ríkisstjórn tók við völdum hefur stjórnarstefnan gengið út á að hygla þeim ríku á kostnað samneyslu og þjóðar.

Milljarðatugum er beint inn á reikninga útgerðarmanna og þeirra sem mestan auðinn eiga.

Slík stjórnarstefna leiðir af sér misrétti og eyðir trausti.

Þessi ríkisstjórn er búin að vera.

Þingflokkar stjórnarflokkanna eru viljalaus verkfæri, sem keyra veg blindunnar með formönnum sínum.

Skilaboð til formanna stjórnarflokkanna úr Hádegismóum vekja athygli, kannski sýnir hver ræður.

Það er áhugavert að heyra embættismann ríkisins segja þetta allt saman undir rós.

En það er líklega borin von að stjórnarherrarnir átti sig á því að þeir eru löngu búnir að fá ákveðin skilaboð frá þjóðinni um að víkja.

Þeir sem bera mestu ábyrgðina á trúnaðarbresti í þjóðfélaginu verða að átta sig á að friður skapast ekki meðan þeir viðhalda hrokafullri misbeitingu valds.

Það verður að kjósa nýja forustu fyrir Ísland, sú gamla er handónýt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 818208

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband