Fyrirtæki og stjórnmál

Það hefur lengi viðgengist og er eðlilegt að stjórnmálaflokkar sækist eftir fjárstuðning fyrirtækja. Sem betur fer hafa nú loksins verið settar reglur um slíkt. Flokkarnir hafa ýmsan háttinn á, gefa út blöð, sækja um beina styrki og ýmislegt annað. Allt samkvæmt leikreglum lýðræðisins. Hvernig ætti eiginlega að halda úti starfi flokka og framboða ef ekki kæmi til fjárstuðningur frá einstaklingum og atvinnulífi.

Svo er það allt annað mál hvort menn haldi sig við prinsip sín og undaskilji einhverja þegar sóttst er eftir stuðningi. Ég er eiginlega hissa á VG að sækja um styrk til Alcoa en meira er það ekki. Þeir mega þetta alveg mín vegna og samkvæmt reglum. En ég held að þeim hefði verið hollara að sleppa þessu í ljósi sögunnar og því sem þeir eru að segja. En það á kannski við í þessu eins og oft áður og hefur verið sagt. " Það er sama hvaðan gott kemur"Tounge


mbl.is VG óskuðu eftir fjárstuðningi Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Ég er eiginlega á því að þetta sé fyllilega í lagi. Væri það ekki frekar í þá átt að menn væru að samþykkja það að stuðningur ákveðinna fyrirtækja hefði áhrif á stefnu flokkanna ef þetta fyrirtæki hefði verið skilið útundan? Kannski ekki.

Ragnar Bjarnason, 5.4.2007 kl. 09:53

2 identicon

Kannski óþarfi að blanda Samfó inn í þetta, bara að benda á að það eru ekkert allir sammála um hvað væru "réttar" skoðanir og hvar þá mörkin ættu að liggja.

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 5.4.2007 kl. 11:08

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Pællið í því ef ,,gamla" krónan sem var úr áli væri enn í umferð.... Rannveig hefði geta sent þeim einn sekk sem Hlynur Halls hefði geta brætt i Vegglistaverkið sitt

Páll Jóhannesson, 5.4.2007 kl. 11:45

4 identicon

Þetta er svipað og ef Frjálslyndiflokkurinn myndi biðja Alþjóðahús um styrk!  :)

Sigurður (IP-tala skráð) 5.4.2007 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 818073

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband