Brjálæðislegar hugmyndir Dalvíkurbyggðar.

Sænska fyrirtækið TS Shipping hefur áhuga á því að byggja þurrkví til niðurrifs skipa á Hauganesi í Eyjafirði. Líklegt er að kvíin verði mjög áberandi í landinu en sveitarstjóri segir að reynt verði að hafa umhverfisáhrif í lágmarki.

_____________

Stundum eru hugmyndir sveitarstjórnarmanna hreinlega út í hött, skammsýnar og hreinlega vitlausar.

Gott dæmi eru landspjöllin í Moldhaugnahálsi.

Þar varð maður fyrir miklum vonbrigðum með sveitarstjórn Hörgársveitar.

Umhverfisspjöllin þar eru sláandi og hörmuleg.

Nýjasta nýtt var svo að bæjarstjórinn í Dalvíkurbyggð mætti með brjálæðislegar hugmyndir um sóðaiðanað við bæjardyrnar hjá Haugnesingum.

Aldrei hefði maður reiknað með að sjá sveitarstjórn með sómatilfinningu setja fram slíkar hugmyndir.

Ég held hreinlega að bæjarstjórinn hafi ekki áttað sig á fáránleika þessara hugmynda með tilliti til íbúa og umhverfis. Dalvíkurbyggð ber ábyrð á umhverfismálum í Eyjafirði með öðrum sveitarfélögum þó þá langi til að leika sóló í þessu máli.

Svæðisskipulag heimilar ekki svona starfssemi og ég sé ekki að þeir Dalvíkingar nái nokkru sinni að koma því þar inn.

Næst mætir hann borubrattur og brosandi og tilkynnir okkur um frábæra olíuhreinsistöð á Litla Árskógssandi. ( kannski )

Svona hugmyndir á að slá út af borðinu samstundis.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Er ekki Svanfríður Samherjahóra enn bæjarstýra á Dalvík Jón?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 5.3.2015 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 818217

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband