Grátbroslegur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins.

„Eft­ir um­tals­verða um­hugs­un hef ég nú til­kynnt for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins að ég vilji hætta sem ráðherra og sæk­ist ekki leng­ur eft­ir að gegna embætti inn­an­rík­is­ráðherra,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu sem Hanna Birna Kristjáns­dótt­ir, inn­an­rík­is­ráðherra, hef­ur sent frá sér.

Innanríkisráðherra hættur.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins rétt búinn að lýsa yfir miklu trausti á ráðherrann.

Svolítið kátbrosleg staða fyrir þingflokkinn, reyndar virðist hafa komið af fjöllum í dag samkvæmt fjölmiðlum.

Getuleysi þessa þingflokks til að taka á þessu máli er algjört.

Sýnir í reynd hvað formaður flokksins er veikur og tvístígandi.

Hanna Birna hefði betur tekið góðum ráðum fyrr.

Auðvitað var aldrei í stöðunni að hún mundi nokkru sinni njóta trausts sem ráðherra í ljósi lekasögunnar.

En tjónið er meira en hefði þurft að vera.

Innanríkisráðherra hefur þegar skaðað ímynd stjórnsýslunnar mikið, eitthvað sem hefði ekki þurft að gerast hefði ráðherrann áttað sig á sínum vitjunartíma.


mbl.is Hanna Birna: Nú er mál að linni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þessu Jón, og það þýðir ekkert að staldra hér við heldur halda áfram að hreinsa út spillta embættismenn íhaldsins.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 21.11.2014 kl. 16:32

2 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Fyrirgefðu Jón Ingi en hvað getur þingflokkurinn annað gert en að lýsa yfir trausti á Hönnu Birnu þar sem ekkert borðfast hefur komið fram að hún hafi tekið þátt í þessu stórfurðulega máli. Jú umboðsmaður Alþingis er að skoða hennar mál og samskipti og hefur fundið margt óeðlilegt í hennar framferði og óskað eftir skýringum. Fáum væntanlega aldrei að vita hvort skoðun þingflokksins hefði breyst þegar hann birtir sínar lokaniðurstöður. 

Ég get þó verið sammála þér með að hún hefði átt að stíga til hliðar úr ráðherrastóli mun fyrr þar sem traust almennings til ráðuneytis hennar var ekkert á þeim tímapunkti.

En skoðum nú söguna. Hversu oft í sjórnmálasögu Íslands hefur ráðherra gert mistök í starfi? Var það ekki síðast Jóhanna Sigurðardóttir og Svandís Svavarsdóttir sem voru dæmd af dómstóli fyrir brot á lögum? Hvar var vantraust þingflokkana þá og afhverju sögðu þau ekki af sér? Jú ... þingflokkarnir hafa ekki ástæðu til að lýsa vantrausti þar sem traustið er enn til staðar til að gegna embættinu þó svo að þau geta verið ósammála því hvernig ráðherran heldur á málinu eða hagar sér í eftirmálum þess.

Ímynd stjórnsýslunar er ekki í molum vegna hennar. Hún er í molum því að embættismenn og ráðherrar síðustu sex ára hafa hagað sér eins og kóngar í ríki sínu og kerfislega náð að eyðileggja þessa ímynd á eigin dáðum og gerðum. Hrunið vissulega hafði sitt að segja en það sem eftir kom hefur svo sannarlega ekki hjálpað til. Þar sem við erum stödd í dag er afleiðing af þeirri atburðarás sem fór af stað árið 2009 þegar raunverulega var hægt og átti að fara í hagræðingu og minkun á ríkisumsvifum.

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 21.11.2014 kl. 17:10

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta eru miklir fjallagarpar, sem koma svona oft af fjöllum.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.11.2014 kl. 17:31

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

 Tjón?  Þetta mál er ein langdregin auglýsing fyrir ágæti sjálfstæðismanna umfram aðra.

Ásgrímur Hartmannsson, 21.11.2014 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Ingi Cæsarsson

Höfundur

Jón Ingi Cæsarsson
Jón Ingi Cæsarsson

Akureyringur.  Oddeyringur.  Jafnaðarmaður.

Formaður Póstmannafélags Íslands.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 000 2021 5.10. haustsol-0158
  • 2022 týndur
  • 20211224-IMG 0196
  • 2022 bb kj si
  • 20220407-IMG 0288

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 818112

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband